Loksins eðlilegur ferill vegna áætlaðra stórframkvæmda

Kort sem sýnir hvar fyrirhugað er að reisa álver við Bakka. Umhverfisráðherra hefur ógilt ákvörðun Skipulagsstofnunar og úrskurðað að heildstætt mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka við Húsavík og tengdra framkvæmda skuli fara fram.

Loksins  eru komin  fram eðlileg vinnubrögð við áætlaðar stórframkvæmdir.  Auðvitað á að meta allan heildarpakkann.  Bygging álvers er engin einangruð framkvæmd- áhrifin eru víðtæk- slík er stærðargráðan.  Verði niðurstaðan jákvæð fyrir byggingu þessa fyrirhugaða álvers- þá er að vænta meiri friðsemdar með framkvæmdina.  Þessu ber að fagna.

 


mbl.is Framkvæmdir metnar heildstætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Tek heilshugar undir hvert orð í pistlinum þínum, Sævar, og hef engu við að bæta. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 31.7.2008 kl. 18:09

2 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Og líka að flýta en ekki nota hægagang stjónrkerfisins til að koma í veg fyrir framþróun

Jón Aðalsteinn Jónsson, 31.7.2008 kl. 20:15

3 Smámynd: Sævar Helgason

Góðir hlutir gerast hægt.   Við höfum vítin til að varast.  Kárahnjúkavirkjun setti þjóðfélagið á skallann - 15 þúsund manna mótmælaganga Ómars og frú Vigdísar var ákveðið svar og ósk um virðingu lands og lýðs.  Það gleymist ekki.

Það verður að vera sæmilegur friður um okkar orkunýtingu --- annað bara gengur ekki. 

Sævar Helgason, 31.7.2008 kl. 22:41

4 identicon

Sammála þér Sævar. Þessi vinnubrögð eiga að vera regla í öllum málum sem snúa að orkuferkum iðnaði, sem hefur áhrif á umhverfi og loftgæði. Vonandi gefur þetta fyrirheit um vandaðri vinnubrögð í þessum málum í framtíðinni.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband