Samið um stálendurvinnslu á Grundartanga
Viðskipti | mbl.is | 7.5.2012 | 15:49
Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra og fulltrúar GMR Endurvinnslunnar ehf. undirrituðu í dag fjárfestingarsamning vegna stálendurvinnslu á Grundartanga. Heildarfjárfestingarkostnaður er 10,2 milljónir evra, 1.664 milljónir króna, og gert er ráð fyrir 20 starfsmönnum í fullu starfi.
Lesa meira
Loksins eru Íslendingar að hefja hér á landi málmiðnað sem byggir á endurvinnslu málma , Notuð er íslensk orka .
Þetta eru frábærar fréttir.
Iðnaðarsvæðið á Grundartanga fer stækkandi. Vonandi er hér byrjun á frekari nýtingu á okkar innlendu orku og aukinni atvinnu því tengt.
Möguleikar okkar eiga að vera mjög góðir. Hér er til staðar mikil hátækniþekking og traust og vel menntað  vinnuafl.
Þessu framtaki hins nýja fyrirtækis á Grundartanga er fagnað.
Stækkun skapar 550 störf í sumar
Innlent | Morgunblaðið | 21.3.2012 | 5:30
„Straumhækkunarverkefnið er mjög viðamikið og fjölþætt og vinnustundir í því eru þegar orðnar vel á aðra milljón. Einn hluti þess, sem snýr að straumleiðarabreytingum, kallar á um 300 málmiðnaðarmenn, einkum sérhæfða álsuðumenn.“
Lesa meira
Miklar stækkunar og endurnýjunar framkvæmdir standa nú yfir á Ísal álverksmiðjunni í Straumsvík. Sannalega góður tími fyrir okkur að fá svona stórframkvæmd á þessum tímum atvinnuleysis.
En þessi framkvæmd sýnir jafnframt mikinn veikleika í okkar menntamálum. Fáir leggja leið sína í málmiðnaðarnám þrátt fyrir verulegan skort á fagfólki í þennan mikilvæga geira í atvinnulífinu.
Flytja þar inn yfir 300 erlenda málmiðnaðarmenn til að framkvæma þetta stóra verkefni. Talið er að um 2000 málmiðnaðarmenn skorti almennt inní atvinnulífið. Það er ekki lítið .
Á sama tíma og háskólar eru yfirfullir og þurfa að aðgangsstýra inngöngu og atvinnuleysi blasið við stórum hópi á námi loknu.
Eitthvað mikið er að í menntakerfinu.
Álverksmiðja Rio Tinto( Ísal) í Straumsvík
Þessar miklu framkvæmdir í Straumsvík hafa kallað á yfir eitthundrað verk og tæknifræðinga í nokkur ár á undirbúnings og framkvæmdatíma.
Það er mikil breyting orðin á frá því Ísal verksmiðjan var reist á sjönda áratugnum-en þá voru starfandi um eitt hundrað verkfræðingar á landinu öllu-einkum í byggingageiranum.
Og nú er þessi gamla og gróna álverksmiðja sem reynst hefur okkur Íslendingum mjög vel- að ganga í mikla endurnýjun lífdaga.
Umbylting er að verða á framleiðslunni yfir í verðmætari vöru og í kerskálum er verið að auka framleiðslunu um 40 þús/árs tonn af áli.
Þegar Ísalverksmiðjan  var reist árin 1967-1969 var hún grundvöllur að stóraukinni raforkunotkun okkar Íslendinga með byggingu Búrfellsvirkjunar og æ síðan hefur verksmiðjan verið tengd auknum umsvifum okkar á sviði raforkuframleiðslu.
Sannalega happa ákvörðun þegar ákveðið var að ráðast í þessa umfangsmiklu stóriðju á árunum fyrir 1970 með byggingu virkjunar við Búrfell og álvers í Straumsvík.
Hægt að skapa gott og gjöfult líf
Innlent | mbl | 17.3.2012 | 11:28
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tók sama steng og formaður flokksins í ávarpi sínu á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þannig gagnrýndi hún „sundurlyndi og ístöðuleysi stjórnarflokka og leynimakk við meðferð rammaáætlunar.“
Og  "Hún sagði að helsta verkefni Sjálfstæðisflokksins væri að „koma íslensku þjóðinni út úr þeim ógöngum sem vinstristjórn hefur bakað henni.“
Er þetta fólk í Sjálfstæðisflokkum-hreinlega ruglað ?
Var það núverandi ríkisstjórn sem keyrði íslensku þjóðina í mesta efnahags og siðferðishrun - í hennar sögu ?
Allt starf núverandi ríkisstjórnar hefur einkennst af því afreki að rífa þjóðina að mestu uppúr þeim hörmungum sem Sjálfstæðisflokkur leiddi yfir landið.
Allar lykiltölur sýna það ásamt mikilli viðurkenningu erlendis frá um efnahagsendurreisnina á Íslandi´
Í öllu þessu starfi hefur Sjálfstæðisflokkur legið þversum og þvælst mjög fyrir.
Það er alveg ljóst að fólkið í Sjálfstæðisflokki kann ekki að skammast sín.
Sagan dæmir þau.
Hlutverk sjávarorku lítið næstu ár
Innlent | mbl.is | 12.3.2012 | 20:43
Ólíklegt er að sjávarorka gegni stóru hlutverki í orkubúskap Íslendinga á næstu áratugum. Þetta er mat forstjóra Landsvirkjunar, sem telur að áður yrði kastvarmi og lághitasvæði nýtt.
Lesa meira
Brattistraumur við Gvendareyjar í mynni Hvammsfjarðar
Sjávarfallastraumarnir í mynni Hvammsfjarðar í Breiðafirði eru mestu einstakir straumar hér á  landi
Eyjaklasinn þvert yfir fjörðinn myndar einskonar þröskuld milli Hvamms-fjarðar og Breiðafjarðar. Og 4 sinnum á hverjum sólarhring verða þarna miklir straumar við aðfall og útfall sjávar.
Mest er sjávarmagnið og straumurinn í Röstinni. Þar getur straumhraðinn farið í allt að 25 km.hraða/klst.
Nokkur annmarki er samt á að virkja þessa orku vegna liggjandans á milli falla en þá lægi framleiðsla niðri.
Samt gefur nútíma tækni þann möguleika að nýta þetta með venjulegri vatnsafsvirkjun um tölvutækni.
Það gæti hentað með lítilli vatnsaflsvirkjun sem þá á liggjandanum framleiddi á fullum afköstum en minnkaði afköst á straumtíma sjávar. Þarna eru mikil verðmæti geymd til framtíðarnota.  Myndin hér að ofan er af Brattastraumi við Gvendareyjar sunnalega í mynni Hvammsfjarðar skammt norðan Álftafjarðar.
Þetta er mikið straumfall.  Það eru margir svona álar milli allra þessara mörgu eyja sem unnt er að virkja.
Og þessir sjávarfallastraumar þarna voru virkjaðir seinnihluta átjándu aldar  í Brokey .Þar sem sundið er þrengst milli Brokeyjar og Norðureyjar var sett upp lítil virkjun sem fékk afl sitt frá miklum straumi sem þarna myndaðist við sjávarföllin . Aflið var notað til að knýja kornmyllu. Myllan virkaði mjög vel. Ennþá er uppistandandi mylluhúsið og aðrennslisskurðurinn þarna í Brokey.
Frá Brokey.
Fremst á myndinni er mylluhúsið með fyrstu sjávarfallavirkjun á Íslandi
Ef vel er skoðað þá sést sjávarstraumurinn á leið inn í Hvammsfjörð.
Á þessum slóðum er mikill hæðarmunur milli flóðs og fjöru eða > 4 metrar. Þessi mikli hæðarmunur myndar þessa miklu strauma.
Myndin er tekin frá Brokey og yfir í Norðurey. Fellsströndin fjærst.
Þannig að þessi náttúrugæði hafa verið nýtt þarna og það til nokkurar stóriðju þess tíma.  Þessi orka er þarna og bíður nýtingar. Það er einkar umhverfisvænt að virkja þarna. Hverflarnir yrðu neðansjávar og engir stíflugarðar né uppistöðulón-allt í raun óbreytt ofansjávar....
Forstjóra FME sagt upp
Innlent | mbl.is | 17.2.2012 | 23:26
Gunnari Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, var í dag sagt upp störfum. Morgunblaðið hefur þetta eftir áreiðanlegum heimildum. Gunnar hefur andmælarétt til mánudags en hann fékk uppsagnarbréf sent til sín í dag.
Lesa meira
Nú er greinilega allt kappa lagt á að eyðileggja allt frekara starf varðandi sakarannsókn vegna efnahagshrunsins.
Forstjóri FME og Sérstakur saksóknari hafa unnið griðarlegt starf við að upplýsa um vafasama gerninga í aðdraganda hrunsins - einkum hjá bönkunum og innherjum bæði í stjórnsýslunni og fjármálageiranum.
Ekki er vafi á og það hefur komið berlega í ljós að sterk öfl vinna að tjaldabaki við að hindra framgang rannsóknarinnar.
Þetta er einmitt sú hætta sem Eva Joly upplýsti okkur svo rækilega um- að einskis yrði svifist til að eyðileggja þessa mikilvægu rannsókn fyrir þjóðinni.
Lögmanni sem falið var að meta hæfi Gunnars Andersens til forstjórastarfa FME hefur í þrígang komist að þeirri niðurstöðu að hann sé vel hæfur. En öfl innan valdaapparatsins undu því ekki og fengnir voru tveir menn annar lögmaður-hinn endurskoðandi til að fara yfir álit þess sem hæfnismatið vann.
Og útkoman er að árið 2001 hafi Gunnari láðst sem þáverandi starfsmanni Landsbankans að geta tveggja aflandsfélaga í eigu bankans.... sem sagt stórglæpur fundinn og forstjórinn rekinn.....
Og hverjir fagna ? Auðvitað þeir sem vilja eyðileggja alla rannsóknina....
Nú er spurt ætlar þjóðin að líða þetta ?  Að öllu málinu sem búið er að vinna verði sturtað í niðurfallið og strik dregið yfir efnahagshrunið og ábyrgð þeirra sem sakir bera...Allir sýkn saka ?
Ríkisstjórnin ekki í hættu
Innlent | mbl.is | 21.1.2012 | 16:25
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, telur ekki hættu á því að ríkisstjórnin falli vegna atkvæðagreiðslunnar sem var í gær um frávísunartillögu gegn tillögu Bjarna Benediktssonar
Lesa meira
Nei, engin hætta á að ríkisstjórnin falli vegna þessa máls-segir Össur nv.ráðherra og fv ráðherra í hrunstjórninni.
Þó var hann svo hræddur um að frávísunartillaga vegna Landsdómsmálsisn gegn fv forsætisráðherra yrði ofaná -að hann kom heim með hraði frá útlöndum til þess eins að koma í veg fyrir það.
Alltaf sjálfum mér samkvæmur-segir Össur. Hann segist ekki vilja Geir H.Haarde fyrir Landsdóm.
Afhverju skyldi það nú vera ?
Hann var jú samráðherra fv forsætisráðherra í hrunstjórninni-óheppilegt í stöðunni.
Er óttinn við það að verða kallaður sem vitni við réttarhöldin- að hann er svona einarður í því að vera samkvæmur sjálfum sér -hafna því að fv. forsætiráðherra svari þjóðinni og segi sannleikan um hrunið ?
Það væri ekki gott fyrir hann sjálfan að verða fyrir því.
Þjóðarræfilinn getur étið það sem úti frýs-ef þar er þá nokkuð að éta fyrir tugþúsunda fórnarlamba hrunsins.
Greinilega er meira um vert að vera alltaf samkvæmur sjálfum sér -í augum fv. ráðherra í hrunstjórninni.
Ekki finnst öllum mikill mannsbragur á því...
AGS: lagabreyting nauðsynleg
Innlent | mbl.is | 13.1.2012 | 16:49
Í skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem unnin var í samvinnu sjóðsins og fjármálaráðuneytisins segir að auka þurfi ábyrgð og aga við meðferð opinberra fjármuna. Því þurfi að endurskoða lög um fjárreiður ríkisins og eru tilteknir fjölmargir þættir sem þar þurfi að hafa í huga, m.a. að lögin taki til almennrar áætlanagerðar í opinberum fjármálum.
Lesa meira
Þetta er góð og tímabær skýrsla ASG yfir meðferð fjármála og áætlanagerðir-á Íslandi.  Það vantar meiri aga og raunhæf vinnubrögð við áætlanagerð. "Þetta reddast "-hugsunarhátturinn víki fyrir öguðum vinnubrögðum.
Þetta hefur verið ljóst á Íslandi löngu fyrir Hrun. Verðbólgan með tilheyrandi falli gjaldmiðilsins og stórfelldra eignatilfærsla frá almenningi yfir til þeirra ríkari-er m.a afleiðing vondrar og ábyrgðalausrar hagtjórnar.
Gott dæmi:
Nú er mikið í umræðunni áætlangerð varðandi Vaðlaheiðargöng . Þó að nafninu til sé um einkaframkvæmd að ræða -er rikissjóður samt ábyrgur fyrir framkvæmdinni og rekstri ganganna. Fjárlaganefnd Alþingis hefur samþykkt fyrsta fjárframlag til verksins- á sama tíma og Samgöngunefnd vill og bíður eftir kostnaðargreiningu og áætlun vegna verksins og hefur ekki lagt blessun sína yfir fjármögnunina.
Nú vill svo til að hagsmunaaðili gerði þá áætlun sem fjármálaráðherra SJS og fjárlaganefnd gerðu að sinni. Óháður aðili hefur metið framkvæmdina miklu dýrari - einkum reksturinn  . Þriðja skýrslan frá 2010 er fundinn og bendir til hins sama-dýrari framkvæmd, en lagt er af stað með.
Hér eru greinilega á ferðinni sömu gömlu vinnubrögðin- að fara af stað með óskhyggjuna eina í farteskinu og sjá svo til hvort þetta reddist ekki-kannski komin meiri drift á Bakka -og svona...?
Nú er tækifærið að taka ábendingu ASG um gerð raunhæfra kostnaðaráætlana til lengri tíma - meiri aga . Spurningin er:
Fellur ríkisstjórnin á fyrsta prófinu að loknu Hruni  ??
Veltuaukningin 45%
Viðskipti | mbl.is | 29.12.2011 | 13:44
Um 6.600 kaupsamningum var þinglýst árið 2011 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir rúmlega 170 milljörðum króna. Hefur veltan aukist um 45% og kaupsamningum fjölgað um 40% á milli ára.
Lesa meira
Þau eru mörg kennileitin sem ríkisstjórnin getur horft til við að meta uppgang efnahagslífsins á Íslandi nú 3 árum eftir hrunið.
Ljóst er að aukin bjartsýni ríkir meðal þjóðarinnar og að efnahagur fer batnandi.
6600 fasteignakaupsamningum þinglýst á árinu 2011 með heildarviðskipti upp á 170 milljarða ísk kr og 45% veltuaukningu frá fyrra ári segir sína sögu.
Fyrir jólin fóru > 5000 manns í jóla innkaup til Boston í USA.
Jólaverslun meiri en björtustu vonir kaupmanna stóð til.
Sala nýrra bíla er meira en helmingi meiri en í fyrra.
En auðvitað er margt óunnið í endurreisninni eftir Hrunflokkana . Atvinnuleysi er ennþá of mikið og kjör hinna alverst settu þurfa meiri athygli.
Skattbyrðum hefur verið deilt réttlátar niður en við höfum búið við í áratugi. Þeir tekjuháu greiða nú skatta eftir tekjum.
Þeir tekjulágu greiða lægri skatta en áður var.
Jöfnuður er meiri og fer vaxandi.
En stjórnarandstaðan málar allt með svörtu og sér hvergi til sólar.
Hætt er við að Hrunflokkarnir tveir verði utan stjórnar um langt árabil...leggist þeir ekki niður.
Ekki hefðbundin skattlagning
Innlent | mbl.is | 11.12.2011 | 12:19
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir það mikinn misskilning að það standi til að skattleggja lífeyrissjóði í hefðbundnum skilningi til frambúðar í þágu tekjuöflunar inn í ríkissjóð.
Lesa meira
Ekki hefðbundin skattlagning segir Steingrímur  fjármálaráðherra. Það er rétt hjá honum. Þessi skattlagning nær aðeins til þeirra launþega sem eru félagar í almenna lífeyrissjóðskerfinu.
Opinberir starfsmenn eru undanþegnir.
Hinir almennu launamenn skulu halda lífeyri opinberra starfsmanna upp-með ríkistryggingu.
Nú eru almennu lífeyrissjóðirnir eign sjóðfélaga á sama hátt og bankainnistæða. Hér er því um eignaupptöku að ræða gagnvart hluta lífeyrisþega.
Almennir launamenn skulu hýrudregnir.
Steingrímur bendir á að Tryggingastofnun greiði til almennra lífeyrisþega mismun þessarar skattlagningar til hinna almennu lífeyrisþega.
Það er villuljós-aðeins smáhluti er bættur þannig.
Ef opinberir lífeyrisþegar verða undanþegnir að bera auknar byrðar til jafns við almenning-verður ekki friður. Samtakamáttar almennings er nú þörf.
Telja herinn horfa til Íslands
Innlent | mbl.is | 5.12.2011 | 6:57
Sérfræðingar í varnarmálum sem Globe and Mail, helsta dagblað Kanada, ræddi við telja að kínverski herinn horfi til Íslands sem ákjósanlegs staðar til að reisa hafnir og önnur mannvirki. Ástæðan er hugsanleg opnun siglingaleiða á norðurslóðum.
Lesa meira
Kanadamenn fylgjast vel með öllum hræringum sem kunna að tengjast opnun siglingaleiðar um Norðuríshafið og um leið mikilla möguleika á vinnslu auðlinda norðursins-bæði olíu á málma.
En það eru fleiri en Kanadamenn sem íhuga þessa stöðu mála og vilja efla áhrif sín á þessum slóðum þegar siglingar geta hafist.
Stórveldin eru þar fremst í flokki.
En aðstæður þeirra eru mismunandi ,sum eiga landfræðilegt tilkall til svæðisins-önnur ekki eins og staðan er núna. Þessvega er mikilvægt fyrir þau stórveldi sem höllum fæti standa um tilkall-að bæta stöðu sína í tíma.
Rísandi stórveldi eins og Kína á mikilla hagsmuna að gæta gagnvart siglingum um norðursvæðið í framtíðinni-en standa höllum fæti landfræðilega.
Og hvað er þá til ráða ?
Eitt er að koma sér vel fyrir á landsvæði sem er í lykilstöðu á svæðinu. Ísland er gott dæmi um þannig land. Nú vill kínverskur auðjöfur eignast stórt landsvæði norðaustur á Íslandi og vill byrja þar ferðamannaþjónustu.
Ekki beint ákjósanlegur staður að mati okkar innfæddra.
En ekki langt frá Grímstöðum á Fjöllum er stutt til t.d Langanes þar sem augu manna hafa nú þegar opnast fyrir miklum möguleikum á hafskipahöfn-tengdri norðurleiðinni.
Ekki þar mikið ímyndunarafl til að sjá mikla möguleika Kínverja með aðstöðu á Grímstöðum á Fjöllum til að tengja málið við hafnargerð í t.d Þistilfirði.
Á fyrrihluta síðustu aldar var annað rísandi stórveldi hér á ferð með miklar hugmyndir um aðstöðu hér á landi. En andstæðingar þessa stórveldis náðu í þess stað fótfestu og breyttu heimsmálunum.
Við höfum vítin til að varast þau--þrátt fyrir digra fjársjóði frá fjarlægu stórveldi og við peningaþurfi um sinn.
Innlent | mbl.is | 27.11.2011 | 12:32
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að drög að frumvarpi sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti í gær um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði ekki lögð fram sem stjórnarfrumvarp. Hún gagnrýnir framgöngu ráðherrans harðlega.
Lesa meira
Loksins er komin hreyfing á þetta mikilvægasta stefnumál stjórnarflokkanna. Þrátt fyrir skýran málefnasamning stjórnarflokkanna hefur sjávarútvegsráðherrann verið dragbítur á framvindu málsins og hagað verkum sínum að eigin mati á málinu.
Mál er að linni.
Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir ,forsætisráðherra sett þetta mikilvæga mál í nýjan farveg.
Ráðherranefnd hefur tekið við framvindunni og stefnt að ljúka málinu með vilja stjórnarflokkanna í samræmi við stjórnarsáttmálann.
Tími kominn til.
Forsætisráðherra hefur tekið mikilvæga forystu í að ljúka þessu þjóðþrifamáli-sem stjórnun fiskveiða er og leggja af hið illræmda núverandi sægreifakerfi-þjóðinni allri til heilla.
"Enginn borgarmúr er svo hár að asni klyfjaður gulli komist ekki yfir" , sagði Filippus Makedoníukonungur í fornöld. Er þetta ekki sigilt ?
Nú veifar kínverskur auðjöfur digrum gullpoka framan í okkur og vill kaupa Grímstaði á Fjöllum til að hefja þar hágæða hótelrekstur.
Fleiri gullpokum er veifað í framhaldinu með hugmyndum um mikla hóteluppbyggingu ú Reykjavík. Að minnsa kosti einn banki er frá sér numinn að hætti fjármálatilfinninga frá árinu 2007.
Sá kínverski telur 80% líkur á að við bítum á agnið.
Innanríkisráðherra er ekki sama sinnis. Þar á bæ eru menn að fara vandlega yfir málið.
Er raunsætt að reka hágæðahótel uppi á mörkum hins byggilega inni við hálendi Íslands ?
Þetta verður ef af yrði á við meðalþorp á Íslandi og væntanlega mikill straumur ferðamanna (kínverska)
Eru Grímstaðir á Fjöllum með gnótt ferskt vatn og holræsakerfi fyrir svona hátækni ferðaiðnað ?
Auðvitað spyr enginn um svoleiðis þegar gulli er veifað...
Og fáum við einhverja tryggingu fyrir því að þarna verði annað byggt en kínversk aðstaða á Íslandi-fyrir Kínverska alþýðulýðveldið ?
Nú eru norðurslóðir að opnast og stórveldin eru komin í kapphlaup um að tryggja sér sem besta stöðu við þá umbyltingu sem það innifelur.
Kína er að verða mesta stórveldi heims.
Á fyrrihluta síðustu aldar var annað rísandi stórveldi hér á ferð með miklar hugmyndir um aðstöðu hér á landi. En andstæðingar þessa stórveldis náðu í þess stað fótfestu og breyttu heimsmálunum.
Við höfum vítin til að varast þau--þrátt fyrir digra gullpoka frá fjarlægu stórveldi og við peningaþurfi um sinn.
Það var í júlímánuði ,dagana 24-27 árið 2001 að Kayaklúbburinn í Reykjavík efndi til sjókayakleiðangurs um Jökulfirði á Hornströndum. Þátttakendur voru alls 14.
Eftir að ræðarar höfðu komið sér til Ísafjarðar var farið með bát frá Ferðaþjónustu Hafsteins og Kiddýar frá Ísafirði að morgni 24.júlí-með allt hafurtaskið og stefnan sett á Hesteyri við Hesteyrarfjörð í Jökulfjörðum. Siglingin þangað tók um 1 ½ klst.
Mannskapurinn var selfluttur með „tuðru“ í land með farangurinn en kayakarnir voru bundnir saman og dregnir í land.
Kort af Jökulfjörðum og róðrarleið innrituð.
Hesteyri fór öll í eyði í nóvember árið 1952. Á Hesteyri myndaðist vísir að þorpi fyrir aldamótin 1900,þegar Norðmenn stunduðu þaðan hvalveiðar og vinnslu á Stekkeyri sem er skammt norðan við þorpið.
Nokkrum húsum er enn vel viðhaldið og notuð sem sumarhús. Í Læknishúsinu, sem er stórt tvílyft timburhús er rekin greiðasala yfir hásumarið.
Þar fengu sjókayakmenn og konur sér „kaffi og pönsur“
Sjóbúið í fjörunni á Hesteyri
Frá Hesteyri liggja gamlar þjóðleiðir til Víknanna á Hornströndum og til Aðalvíkur. Í baksýn er fjallið Kagrafell og Hesteyrarbrúnir (neðan við snjóskaflinn)
Um Hesteyrarbrúnir lá leiðin frá Hesteyri um Kjaransvíkurskarð yfir í Kjaransvík og Hlöðuvík og síðan þaðan í Hælavík og um Atlaskarð í Hornvík en heiðina til vinstri er farið í Aðalvík.
Á myndinn eru kayaykræðarar að búa bátana undir róðurinn. Það er mikill farangur sem þarf í ferð sem þessa um Jökulfirðina og voru kayakarnir því þunglestaðir í upphafi ferðar
.Veður var þungbúið og vaxandi vindur var út Hesteyrarfjörð. Og um kl 15 lögðum við upp frá Hesteyri og stefndum inn Hesteyrarfjörðinn að Stekkeyri.
Á Stekkeyri höðu Norðmenn mikil umsvif í upphafi 20. aldar með hvalveiðum og vinnslu eða allt þar til hvalveiðibann gekk í gildi.
Síðan tók Kveldúlfur við og var með mikla síldarvinnslu framyfir fjórðatug aldarinnar.
Svo hvarf síldin og mannfólkið fluttist smá saman burt-suðuryfir Djúp. Við skoðuðum rústirnar frá þessum athafnatímum.
Og ýtt var úr vör frá Stekkeyri og stefnan sett á útnesið á fjallinu Lás sem er útvörður Hesteyrarfjarðar í austri og skilur að Veiðileysufjörð.
Nú var kominn strekkings vindur og kröpp alda-það var lens.
Róið suður Hesteyrarfjörð með fjallinu Lás
Þegar komið var að enda fjallsins var komið hvínandi rok og ekki talið ráðlegt að leggja þá í að þvera Veiðileysufjörð.
Kayakarnir voru þunglestaðir og létu því vel í sjó en gæta þurfti varúðar með vindinn í bakið með hviðum og krappri báru.
Ekki er gott að stunda myndatökur við svona aðstæður-nóg var annars að halda jafnvæginu.
Lagst í var við Skaufanes undir Lásfjalli
Ákveðið var að leggjast í var við Skaufanes fremst við Lásfjall og bíða af okkur veðrið . Mun hvassara veður og sjór var í Veiðileysufjörðinn sem við ætluðum að þvera.
Það var þægileg tilvera þarna við Skaufanesið meðan við biðum.
Við fengum okkur góða næringu því löng leið var framundan að Kvíum í  Lónafirði þar sem við ætluðum að hafa bækistöð til tveggja nátta.
Róið þvert fyrir Veiðileysufjörð
Og fyrripart kvölds gekk vindur niður og sjólag varð gott.
Við lögðum upp frá ystaenda Lásfjalls og þveruðum Veiðileysufjörðinn –alls um 6 km róður. Á myndinni sést að ennþá er þungbúið í lofti en skyggni að aukast.
T.v sjáum við Bolafjall sunnan Djúps-þá út Djúpið og Lásfjall næst og framúr því sér til Grænuhlíðar.  Róðurinn yfir Veiðileysufjörð gekk vel.
Lendingarstaðurinn við eyðibýlið Kvíar í Lónafirði
Og seint um kvöldið var komið að eyðibýlinu Kvíum eftir rúmlega 20 km róður frá Hesteyri að  hluta til í slæmu veðri.
En þegar að Kvíum var komið var veður orðið með ágætum og bjart yfir.
Að Kvíum voru reistar tjaldbúðir austan Bæjarár og eyðibýlisins.
Þarna skyldi höfð bækistöð í tvær nætur.
Kvíar fóru í eyði árið 1948. Þar stendur ennþá hið reisulegasta steinhús ,tveggjahæða. Bæjará rennur straumhörð um gljúfur neðan túns –til sjávar.
Á Kvíum var mest byggt á sjósókn og selveiði inni í Lónafirði –auk búskapar með kindur og kýr. Það var mjög vel búið þarna.
Á flóði veiddust stórar og feitar bleikjur í ármótum. Þær voru grillaðar í eftirrétti og smökkuðust vel.
Refafjölskylda átti greni undir Múlanum austan Kvía og mættu sum okkar henni á göngu skammt frá tjaldstaðnum.
Myndin sýnir kayakana í vör neðan hárra sjávarbakka að Kvíum.
Handan Jökulfjarðar er Maríuhorn útvörður Grunnavíkur
Haldið inn Lónafjörð
Og að morgni 25.júlí var komið mjög gott veður .
Ákveðið var að róa inn Lónafjörð og inní Rangala sem er innst í Lónafirði .
Þetta yrði um 20 km róður fram og til baka að Kvíum.
Lónafjörður er talinn fallegastur Jökulfjarðanna ,einkum í Ragala og Sópanda.
Ekki eru sagnir um fasta byggð í Lónafirði.
Lónafjörður féll undir Kvíar og var nýttur þaðan einkum til selveiða inní Rangala og mið-Kjós.
Myndin er tekin utan við Kvíar og horft inn Lónafjörðinn.
Fremst t.v er Múli,þar fyrir neðan liggur Borðeyri þvert fyrir og fyrir miðri mynd er fjallið Einbúi .
Til hægri við hann er Sópandi og heiðin þar uppaf eru Þrengsli,þjóðleiðin til Barðsvíkur á norður ströndum . Til hægri  er svo Hvanneyrarhlíð.
Eyðibýlið Gautastaðir innarlega í Lónafirði
Eftir nokkurn róður inn Lónafjörðinn blasir við okkur eyraroddi undan brattri fjallshlíðinni. Allur þakinn hvönn.
Hvönnin vísar til mannvistaleifa um aldir .
Þetta eru Gautastaðir.
Engar sagnir eru um búsetu á Gautastöðum en ekki ósennilegt að þarna hafi verið haft í seli frá Kvíum fyrrum.
Þarna er einstök fegurð og þessvegna glæsilegt bæjarstæði.
Þarna í kring hafa fundist volgrur og steingerfingar trjáa frá tímum hitabeltis á þessum slóðum-þúsundir ára gamlar.
Rangali í Lónafirði framundan
Innst inni í Lónafirði að vestan er Rangali.
Afar fallegur staður á hásumri þegar veður skartar sínu fegursta.
Upp Rangalann liggur gömul þjóðleið yfir í Hornvík á Hornströndum.
Algengt var fyrrum að þeir sem á norður Hornströndum bjuggu  létu koma nauðsynjavöru frá Ísafirði með báti yfir í Ranala eða Mið-Kjós,fyrir jól, sem þeir síðan nálguðust þegar færð og veður leyfði.
Þessar birgðir voru síðan bornar á bakinu yfir fjöllin og heim í kotin.
Oft urðu þetta miklar svaðilfarir og mannraunir.
Spáð og spekúlerað í náttúruna inni í Rangala
Dvalist var góðan tíma þarna inni í Rangala.
Mikil og stórbrotin fegurð.
Fjörusvæðið framan við okkur heitir Ófæra. Nafnið skýrir sig sjálft.
Ró og kyrrð inni í Rangala Kayakinn bíður húsbónda síns eins og þægur hestur.
Það var erfitt að snúa til baka frá þessum dýrðar stað.
Ein kayakkonan töfraði úr pússi sínu allt til pönnukökubaksturs.
Ekki amalegt að gæða sér á þeim í blíðunni þarna og virða þessa stórbrotnu náttúru fyrir sér.
Og að lokum var haldið heim í tjaldbúðirnar að Kvíum.
Grill var sett upp í gamalli fjárrétt á kambinum við Bæjará  og að lokum skriðið í tjöldin efir frábæran róðrardag inni í Lónafjörð og Rangala.
Búist til brottferðar frá Kvíum á þriðja ferðadegi
Og nýr dagur reis þarna norður í óbyggðum Hornstrandanna í Jökulfjörðum.
Nú var stefnt þvert austur yfir Lónafjörðinn og í átt að Hrafnfirði.
Veður skartaði sínu blíðasta ,sól,ekki ský á himni-logn til sjávar.
Lagt upp frá Kvíum
Í baksýn á myndinni  eru Höfðaströndin,Kollsá,Staðarhlíð og Maríuhorn fremst .
Bolafjall sunnan Djúps gægist fram í fjarska.
Rjómablíða til lofts og sjávar.
Nokkrar hnísur brugðu á leik skammt frá.
Róið inn Hrafnfjörð
Eftir að Lónafjörður hafði verið þveraður var komið í Hrafnfjörð.
Lónanúpur er til vinstri .
Gýgarsporshamar fyrir miðri myndi í botni Hrafnfjarðar.
Skorarheiði,gömul þjóðleið yfir í Furufjörð til hægri við hamarinn.
Og nú var stefnt á Hrafnfjarðareyri í Hrafnfirði.
Lendingin í fjörunni á Hrafnfjarðareyri
Horft er út Hrafnfjörðinn.
T.v. er KjósarnúpurStaðarhlíð fyrir miðri mynd með Maríuhorn fremst.
Og í fjarska sér í Grænuhlíð og Ritinn norðan Djúps.
Veðurblíðan er einstök.
Minningarkross um útlagann fræga Fjalla-Eyvind  á Hrafnfjarðareyri.
Á myndinn er minningarkross um Fjalla-Eyvind en hann bjó síðustu ár ævi sinnar ásamt Höllu í friði við guð og menn.
Er einfaldur trékross og áhoggin mýrarsteinn, þar sem stendur „ Hjer liggur Fjalla-Eyvindur Jónsson“
Tilurð steinsins er vegna áheits sem bóndi á Hrafnfjarðareyri ,um miðja nítjándu öldina, gerði þegar fé hans var að flæða í botni Hrafnfjarðar og varð Fjalla-Eyvindur við áheitinu og féð koms af.
Þegar síðustu ábúendur á Hrafnfjarðareyri voru að hafa sig á brott árið 1943, dreymdi heimilisfólkið eins draum síðustu nóttina:
-Fjalla-Eyvindur gekk um hlaðið fram og aftur-við staf“
Að lokinni frábærri dvöl á Hrafnfjarðareyri var róið út Hrafnfjörðinn inní Kjós og síðan þveraður Leirufjörður og tekið land á Flæðareyri.
Þar er mjög gott tjaldstæði við gamalt samkomuhús sem þar er.
Slegið var upp tjaldbúðum og sameinast við síðasta kvöldverðinn í þessari ferð.
Og hin nóttlausa veröld þarna var böðuð í rauðri kvöldsólinni í kyrrðinni á Jökulfjörðum. Ógleymanlegt.
Að morgni síðasta róðrardags hafði veður breyst
Við vöknuðum snemma þenna síðasta róðrardag á Jökulfjörðum.
Farið var að kula af norðaustan.
Og þegar við ýttum úr vör þarna á Flæðareyri var kominn talsverður vindur með úfinni öldu.
Nú var róið vestur með Höfðaströndinni og tekið land við eyðibýlið Kollsá og tekin kaffipása fyrir loka áfangann sem var Grunnavík.
Eftir að lagt var upp frá Kollsá tók Staðarhlið við.
Fyrir miðri Staðarhlíð eru Staðareyrar.
Á eyrum voru um aldir fjölmennar verstöðvar einkum á vorin
Jökulfirðirnir voru þá matarkista .
Sagan geymir margar sögur um slæm sjóslys við Staðareyrar þegar sjór rauk skyndilega upp.
Við fengum að finna það á þessum síðasta róðrarlegg um Jökulfirði að mjög fljótt er að vinda upp þarna og sjór að verða úfinn.
Róið undir Maríuhorni-Gathamar framundan
Og nú er farið að styttast róðurinn til Grunnuvíkur.
Framunda er Ófæra með Gathamri.
Þrátt fyrir nokkurn sjó rérum við flest um gatið á Gathamri.
Skemmtileg upplifun.
Og þegar við komum fyrir Garhamar var stuttur róður eftir til Grunnuvíkur þar sem við lentum um kl 16.00 þann 27.júlí 2001.
Alls höfðu verði rónir rétt um 75 km í ferðinni.
Sjókayakfólkið sameinaðist í kaffi að Sútarabúðum í Grunnavík en þar er rekin greiðasala yfir sumarið.
Nokkrir lögðu leið sína í gömlu kirkjuna á Stað en hún er algjör perla.
Vel við haldið og skartar frægum myndum á predikunarstól ættuðum sunnan úr hámenningu Frakklands á fyrri öldum.
Og  ferðaþjónusta Hafsteins og Kiddýar sótti okkur og allt okkar hafurtaks til Grunnuvíkur .
Til Ísafjarðar var komið um kl 20.30 um kvöldið.
Frábærri sjókayakferð um Jökulfirði á Hornströndum var lokið.
Góða skemmtun þið sem lásuð.
Brugðið fæti fyrir uppbyggingu álvers
Innlent | mbl.is | 18.10.2011 | 12:04
Sjálfstæðisfélag Húsavíkur og nágrennis segir að stjórnvöldum hafi nú tekist að koma í veg fyrir að Alcoa reisti álver á Bakka við Húsavík.
Lesa meira
Eitthvað er nú þessi yfirlýsing Sjalfstæðisfélags Húsavíkur beygluð.  Alcoa er búið að vera með forgang til orkukaupa þarna í Þingeyjarsýslu.
Nú hafa þeir fallið frá öllum hugleiðingum um byggingu 360 þús/tonna álvers til nýtingar á þessari orku. Og hver skyldi ástæðan vera ? Heildarorkan sem þeir vilja fá er ekki fyrir hendi frá þessum jarðvarmasvæðum og til nota fyrir 250 þús /tonn álvers er afhendingartíminn alltof langur fyrir svona risafjárfestingu.
Hellisheiðarvirkjun
Að auki er verðið sem við verðum að fá einfaldlega of hátt fyrir áliðnað. En upplýst er að fimm meðalstór fyrirtæki eru komin á lokaviðræðustig til orkukaupa þarna eða innan 2ja ára.
Alveg ljóst er orðið að jarðvarmavirkjun til raforkuframleiðslu er alls ólík vatnsaflsvirkjunum. Langan tíma tekur að nálgast orkugetu frá jarðvarma- þar er reynslan ein sem að lokum leggur línurnar-það tekur mörg ár. Þessvegna eru lítil og mðalstór fyrirtæki mjög heppilegir notendur.
Borhola á Hellisheiði
Við sjáum nú hvað er að gerast á Hellisheiði. Þar var farið með offorsi í að byggja upp stórar jarðvarmavirkjanir til raforkuframleiðslu. Í ljós eru að koma stór vandamál varðandi losun á þéttivatni. Umhverfismatið segir að dæla verði því djúpt í sprungur berglaga vegna eiturs sem í því er.
Gvendarbrunnar Reykvíkinga eru jafnvel í mengunarhættu svo ekki sé minnst á viðvarandi jarðskjálfta frá svæðinu....
Álver sem þurfa gríðar mikla orku strax frá gangsetningu eru því ekki heppilegir notendur jarðvarma..
Langisjór er stórt stöðuvatn suðvestan undir Vatnajökli og rúmlega 20 km á lengd með stefnuna norðaustur til suðvesturs  alls um 27,7 km2 að flatarmáli. Hæð vatnsins yfir sjávarmáli er 670 m og mesta dýpi 73,5 m. Tveir fjallgarðar liggja með vatninu-Breiðbakur að vestan og Fögrufjöll að austan. Vatnajökull rís fyrir norðurenda Langasjávar. Þorvaldur Thoroddsen,náttúrufræðingur lýsti Langasjó fyrstur manna og gaf honum nafnið við lok nítjándu aldar. A þeim tíma lá skriðjökull fram í norðurenda vatnsins en í dag er talsverður spotti frá vatninu og að jöklinum sem lýsir vel hversu Vatnajökull hefur hopað og rýrnað á rúmri öld.
Kayakklúbburinn fór í kayakferð á Langasjó dagana 18-20 ágúst 2007. Alls tóku þátt 10 ræðarar víðsvegar að af landinu. Það er löng leið að fara frá Reykjavík og að Langasjó. Þann 18. ágúst var farið að Hólaskjóli í Skaftártunguafrétti og gist þar um nóttina . Og á laugardeginum 19. ágúst var síðan brunað inn að Langasjó á fjallabílum.
Langisjór -róðrarleið.
Við lögðum bílunum við veiðihúsið sem  er við suðvesturenda vatnsins. Allt umhverfið skartaði sínu fegursta,vatnið spegilslétt, litabrigði Fögrufjalla einstök og í rúmlega 20 km fjarlægð bar drifhvítann skjöld Vatnajökuls við himinn.  Þetta var stórbrotin aðkoma.
Í upphafi róðurs-horft norður eftir Langasjó-Vatnajökull í baksýn
Nú var hafist handa við að lesta kayakana til tveggja daga ferðar um þetta heillandi svæði uppi á öræfum Íslands, í um 700 metra hæð.
Pistlahöfundur varð fyrir því að uppgötva að svefnpokinn hafði gleymst í Hólaskjóli.
Nú var úr vöndu að ráða.
Inn við norðurenda Langasjávar mátti búast við næturfrosti og því illt að vera án svefnpoka í tjaldinu. Eftir að hafa yfirfarið stöðuna ákvað ég að fara í róðurinn þrátt fyrir þessa uppákomu. Ég var með góða uppblásna dýnu, hlýan fatnað og eitthvað lauslegt til yfirbreiðslu.
En fjórar öldollur voru skildar eftir í bílnum- ekki var á bætandi að missa yl úr kroppnum með alcoholi....
Lagt upp í kayakróður á Langasjó. Hér eru hjón á tveggjamanna fari
Lagt var í róðurinn um kl. 11 að morgni laugardags. Vatnið var sem spegill og Fögrufjöll og himinskýin spegluðust í vatninu. Þetta var ægifögur veröld.
Lengi voru uppi áform um að gera Langasjó að uppistöðulóni fyrir virkjanir á Tungnársvæðinu og veita Skaftá í Langasjó.
Þau áform, ef þau hefðu náð fram að ganga, hefðu rústað Langasjó. Þetta blátæra háfjallavatn hefði orðið að brúnleitum drullupolli með 30-40 metra hæðarsveiflu á yfirborði.
Gróður Fögrufjalla hefði orðið fyrir miklum skemmdum.
Sem betur fer eru þessi áform að baki. Langisjór er friðlýstur með Vatnajökulsþjóðgarði.
En við höldum kayakróðrinum áfram.
Magnað umhverfi.  Öræfaparadís.
Fjöllin spegluðust í vatninu og langt í fjarska var Vatnajökull alltaf í sjónlínunni. Einkennileg strýta stóð uppúr vesturjaðri hans og vakti umræður um að eitthvað héti svona flott strýta. Þetta reyndist vera önnur af tveimur strýtum sem Kerlingar nefnast.
Eftir um 6 km róður norður eftir Langasjó var tekin hvíldar og kaffipása á fallegri eyju nálægt strandlengju Fögrufjalla
Lent á lítilli og fallegri eyju-kaffihlé og hvíld.
Og á meðan við njótum kaffis og hvíldar förum við yfir þetta sem "Náttúrukortið" segir um Langasjó
"Langisjór, stærsta blátæra fjallavatn landsins, liggur mitt í ósnortnu víðerni í djúpum dal milli móbergshryggjanna Tungnaárfjalla og Fögrufjalla. Þar er einn fegursti staður landsins, að formum og litbrigðum, víðáttu, og andstæðum. Þráðbeinir hryggir rísa brattir upp af vatnsfleti sem skilur að nær gróðurlausa svarta sanda Tungnaárfjalla og víðlenda skærgræna mosþembu Fögrufjalla með strjálum hálendisgróðri. Í norðaustri rís hvítur Vatnajökull. Breiðbak ber hæst í Tungnaárfjöllum og við suðurenda Langasjávar móbergshnjúkinn Sveinstind (1090 m y. s.) sem Þorvaldur Thoroddsen nefndi eftir Sveini Pálssyni. Langisjór er 20 km langur, allt að 2,5 km breiður og tíunda dýpsta vatn landsins (73,5 m)  Afrennsli er til Skaftár um ána Útfall  og 12 m háan foss í skarði norðarlega í Fögrufjöllum. Fram undir lok 19. aldar er talið að útfall hafi verið norður úr Langasjó en þá hafi jökull náð að skríða að Fögrufjöllum og lokað rásinni svo að núverandi Útfall varð til. Jafnframt tók jökulvatn að renna í Langasjó og lita hann. Um 1966 hafði jökullinn hins vegar hopað svo að vesturkvíslar Skaftár tóku að renna austur með Fögrufjöllum og Langisjór varð aftur tær eins og hann er talinn hafa verið fram að lokum 19. aldar. Frá Landmannaleið er um 20 km greiðfær slóð skammt norðan við Eldgjá inn að sunnanverðum Langasjó og önnur nokkru vestar að Faxasundum við Tungaá og síðan með Lónakvísl að Langasjó. Í vatninu eru urriði og bleikja. Margir landslagsljósmyndarar telja Langasjó fegursta stað Íslands. Ekki er gert ráð fyrir að Langisjór, Tungnaárfjöll og Fögrufjöll, verði innan væntanlegs Vatnajökulsþjóðgarðs. "  Síðasta umsögnin hefur nú breyst-góðu heilli.
Allt hefur sinn tíma og að lokinni hvíld var sest í kayakana á ný og nú var stefnt á Fagrafjörð í þessum áfanga.
Fagrifjörður ber svo sannalega nafn með rentu. Í honum er afar falleg klettaeyja og ofan hennar gnæfir Háskanef. Það er stutt milli fegurðar og háska þarna. Þessi nöfn hafa sennilega orðið til meðal smalamanna fyrr á öldum.
Fagrifjörður - klettaeyjan og yfir gnæfir Háskanef
Eftir gott stopp í Fagrafirði var ferð haldið áfram og nú var markmiðið að róa norður með vatninu og koma auga á Útfallið. Það var ekki fyrr en við komum að því að við heyrðum árniðinn  og fundum þetta eina útfall frá Langasjó.
Farið var í land og gengið upp á klettahöfða við norðurhlið árinnar og umhverfið skoðað. Útfallið rennur fyrst í nokkuð láréttu streymi áður en það steypist niður bratta. .
Eftir að hafa skoðað Útfallið tók við lokaáfanginn -inní enda Langasjávar . Þar skyldi tjaldað um nóttina. Það var stuttur róður frá Útfallinu að tjaldstæðinu og fyrren varði var 20 km róðri dagsins lokið. Sama blíða hélst áfram
Nú voru reistar tjaldbúðir á jökulleirnum þar sem 100 árum áður var undir skriðjökli. Stutt var inn að sporði Vatnajökuls.
Nú tók við kvöldverður og að honum loknum var kveiktur varðeldur með aðfluttum brennikubbum. Það var því góður ylur á kvöldvökunni okkar þarna inni á regin öræfum Íslands í um 700 m hæð. Stórkostlegt.
Og við kulnandi glæður varðeldsins skriðu kayakræðarar inní tjöldin og hlýja svefnapokana nema undirritaður hann skreið bara inn í tjaldið því enginn var svefnpokinn.
Næturkul lagði frá jöklinum og reynt var að halda  hita á kroppnum með hjálp allra þeirra efnisbúta sem tiltæk voru,öll aukaföt fengu hlutverk flotvesti og kayakstakkurinn skipuðu öndvegi hér og þar og sopið var á heitu vatni -ætlaði hrollurinn að varna svefns.
Allt fór þetta vel og nýr dagur reis á öræfum. Lognið var sem fyrr og Langisjór sem spegill. Að loknum morguverði voru tjöld tekin niður og allur búnaður settur í lestar kayakanna-og ýtt úr vör.
Framundan var 20 km róður suður eftir Langasjó. Og nú blasti Sveinstindur, við allan róðurinn ,í suðri.
Tvær hvíldarpásur voru teknar á eyjum á leiðinni. Og fyrr en varði lentum við í fjörunni neðan við bílana.
Afarvel heppnaðri kayakferð Kayakklúbbsins var lokið.
40 km róður um Langsjó var að baki. Fararstjóri okkar var Páll Reynisson. Það voru ánægðir kayakræðarar sem kvöddu Langasjó á þessum síðsumars sunnudegi í ágúsr árið 2007.
Og undirritaður lauk ferðinni af öræfum með viðkomu í Hólaskjóli og náði í svefnpokann góða.
Góða skemmtun