Ríkisstjórnin tekur á hundruð milljarða skattsvikum

Hundruð milljarða skattsvik
Innlent | mbl.is | 16.3.2010 | 11:47
Jóhanna 
Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússonþ Stjórnvöld segja að rannsókn á skattalagabrotum í tengslum við hrunið hafi leitt í ljós, að tekjur sem nema hundruð milljörðum króna hafa ekki verið taldar fram til skatts eins og lög gera ráð fyrir. Verður sérstakur vinnuhópur settur á stofn hjá embætti skattrannsóknastjóra til að fjalla um þetta.
Lesa meira

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Það eru ekki neinir smá fjármunir sem skotið hefur verið undan - hundruð milljarðar króna.

 Það er ekki seinna vænna en tekið sé á þessum glæpum. 

  Og ríkisstjórnin boðar hert skattaeftirlit.

Sannalega orðið tímabært. 

Almennir launþegar eru mergsognir þar sem hver króna er skattlögð til hins ýtrasta.

Það hefur verið svo auðvelt- öll gögn vegna þeirra fara sjálfvirkt inní reikningskerfið. 

 Annað hefur gilt með þá sem stunda sjálfstæðan rekstur og fjármálaumsvif. 

Þar hefur þurft verulegt framlag skattayfirvalda við aðhald og rannsóknir.

Nú á á bæta úr því og er löngu tímabært.  

Ríkisstjórnin er að standa sig í þessu mikilvæga máli.

 


mbl.is Hundraða milljarða skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Löngu tímabært og viðeigandi, skulum við segja, að fara að ná tökum á þessari firringu.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 16.3.2010 kl. 12:35

2 Smámynd: Hamarinn

Akkúrat núna er tímabært að frysta eigur stórþjófanna. Vegna þess að þeir hafa komið öllu undan. Það var verið að bíða eftir rétta tímanum.

Hamarinn, 16.3.2010 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband