6.10.2010 | 22:36
Sjálfstæðisflokkur ekki vandur að virðingu sinni
Boða formenn flokka á fund í fyrramálið
Innlent | mbl.is | 6.10.2010 | 19:49
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að í dag kl. 15.00 hafi borist fundarboð vegna fundar í fyrramálið þar sem fimm ráðherrar ríkisstjórnarinnar hyggjast ræða skuldavanda heimilanna.
Lesa meira
Hinn ungi formaður Sjálfstæðisflokksins telur það Flokknum ekki samboðið að vinna með ríkisstjórninni að skuldavanda heimilanna í landinu og afþakkar boð um það.
Nú er þessi skuldavandi heimilanna til kominn vegna hörmulegrar stjórnar Sjálfstæðisflokksins sem leiddi til efnahagshruns á Íslandi.
Gríðarleg mótmæli urðu við setningarræðu forsætisráðherra við þingsetningu að kvöldi 4.október sl. Um 8-10000 manns mótmæltu vinnubrögðum Alþingismanna í heild sinni og lýstu miklu vantrausti á allt það lið-og krafðist úrbóta þegar í stað fyrir heimilin í landinu..
Bjarni þessi, formaður Sjálfstæðisflokksins var þar síst undanskilinn.
Hann rífur bara kjaft og snýr upp á sig.
Heimilin í landinu eiga ekki mikils að vænta frá hrunflokknum í þeim skuldavanda sem Flokkurinn kom þeim í.
Boða formenn flokka á fund í fyrramálið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.11.2010 kl. 21:35 | Facebook
Athugasemdir
Þetta lýsir því bara hvernig sjálfstæðismenn eru.
Þeir eiga ofboðslega bágt nú um stundir, algerlega valdalausir bæði í ríkisstjórn og Borg.
Hamarinn, 6.10.2010 kl. 22:42
Æ jæjæ greyin mín þið eruð kannski með betri lausnir eða leiðir...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 6.10.2010 kl. 23:30
Stærsta vandamál Íslands, heitir Sjálfstæðisflokkurinn, eins og hefur sést síðastliðin 20 ár.
Það þarf að útræma þessarri glæpaklíku.
Hamarinn, 7.10.2010 kl. 18:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.