14.2.2008 | 10:09
Fylgi við Sjálfstæðisflokk dalar..Samfylkingin bætir mikið við sig
Þá er fyrsta skoðanakönnun á fylgi stjórnmálaflokkanna eftir að hallarbyltingin í Ráðhúsi Reykjavíkur var gerð seinnihluta janúar, komin fram.
Niðurstaðan er þessi :
Samfylkingin fékk 39%, Sjálfstæðisflokkur 34%, Vinstri grænir 12%, Framsóknarflokkur 8,5% og frjálslyndir tæp 7%.
Þessi skoðanakönnun er framkvæmd áður en REI skýrslan var kunngerð og Kastljóss fingurbrjótur Vilhjálms fv. borgarstjóra ekki kominn fram.
Gera má ráð fyrir því að uppákoman í borgarstjórninni sé ráðandi í þessari skoðanakönnun og hefði orðið mun lakari fyrir Sjálfstæðisflokk hefði hún verið tekin til dagsins í dag.
Þeir flokkar sem stóðu að því meirihlutasamstarfi ,undir forystu Dags B. Eggertssonar fv borgarstjóra , sem Vilhjálmur Þ, Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon veltu úr sessi , eru með um 60 % fylgi samkvæmt þessari könnun.
Ljóst er af þessu að vandi Sjálfstæðisflokks í Reykjavík er mikill...tiltrú fólks á flokknum fer þverrandi.
Samfylkingin getur vel við unað og ljóst að Dagur B. Eggertsson nýtur vaxandi trausts .
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll Sævar, þetta er kannski eini ljósi punkturinn í öllu þessu klúðri stjórnmálamanna.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 14.2.2008 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.