1.7.2008 | 23:35
Harður dómur um íslenska einkabankakerfið
"Prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics, Robert Wade, gagnrýnir í grein sem hann skrifar í Financial Times ýmislegt á Íslandi. Segir hann að rót þess vanda sem íslenskt efnahagslíf glími nú við nái aftur til þess tíma er bankarnir voru einkavæddir. Það hafi verið gert í flýti og þar hafi stjórnmál ráðið för. Segir Wade að uppi sé orðrómur um að Samfylkingin ætli sér að slíta stjórnarsamstarfinu og boða til nýrra kosninga."
Stöndum við á rústum nýfrjálshyggjunnar sem Sjálfstæðisflokkur með fulltingi Framsóknarflokksins innleiddi hér með einkavinabankavæðingunni ?
- Gengið fallið um 35-40 % á fáeinum vikum
- Stefnir í > 20 % verðbólgu á haustmánuðum
- Fjöldaatvinnuleysi á haustmánuðum
- Vextir þeir hæstu í hinum vestræna heimi
- Skuldsettnasta þjóð í heimi
- Handónýtur gjaldmiðill
- Vanræksla varðandi gjaldeyrisforða og bindingu útlána - meðan tími var til
Úrræðatillögur stjórnvalda : Reisa fleiri álver...
Þarf ekki að fara að vinda ofanaf vitleysunni og marka nýja peninga og efnahagsstefnu og koma á nauðsynlegum aga og taka upp nýjan og traustan gjaldmiðill...evruna ??
Rót vandans einkavæðing íslensku bankanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.7.2008 kl. 17:21 | Facebook
Athugasemdir
Gjaldmiðillinn er ekkert ónothæfur, það eru þeri sem stjórna en þora ekki að stjórna.
ÞAr er verkurinn.
Bretar vilja komast í laustengdara samband við ESB og nú kváðu Svíar vilja úr sambandinu, vegna heftandi áhrifa á milliríkjasamninga í verslun, viðskiptum og rannsóknasamstarfi.
Réttara væri, að menn hysjuðu upp um sig buxurnar og færu í þá sem með sviksamlegum hætti sölsuðu undir sig suma einkabakana og nú einn elsta sparisjóð landsins.
Afhauser átti að vera Kjölfestufjárfestir en það voru leiktjöld.
Þessa menn á að taka og kjöldraga og af þeim allar eigur um leið og bankinn væri tekin af þeim og þjóðnýttur (kaupum rift)
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 2.7.2008 kl. 11:11
Heill og sæll þetta er góður pistill hjá þér Sævar og góð lýsing á þeim vandræðum sem stjórnmálamenn og fjármálamenn hfa komið okkur í.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 4.7.2008 kl. 10:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.