16.1.2009 | 19:12
LÍÚ fagnar að fá meiri kvóta í skulda óráðsíuna
Frétt af mbl.is
Stjórn LÍÚ fagnar kvótaaukningu
Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að auka heildaraflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiði ári um 30.000 tonn. Jafnframt fagnar stjórn LÍÚ þeirri yfirlýsingu ráðherra að gert sé ráð fyrir því að heildaraflamark í þorski verði ekki lægra en 160 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári.
Lesa meira
LÍÚ er félag útgerðamanna sem hafa fengið "eignarhald" á öllum óveiddum fiski í sjónum við strendur Íslands allt að 200 sjómílur á haf út. Enginn smá biti það . Þó eru fiskimiðin, auðlindin sjálf - þjóðareign. 23 ár eru síðan settar voru takmarkandi aflaheimildir innan fiskveiðilögsögunnar . Það var gert í tvennum tilgangi :
1) Að koma í veg fyrir ofveiði sem þá var talin hætta á.
2) Að auka hagkvæmi veiðanna og útgerðanna. Á þeim tíma voru veiðiheimildir milli 350- 400 þús tonn af þorski/ári.
Og nú 23 árum síðar er staðan sú að heimilt er að veiða 130 þús.tonn/ári af þorski . (2008) Og útgerðin er skuldugri en nokkru sinni fyrr í sögu Íslands . Útgerðin skuldar 800- 900 milljarða ísl kr.
Afrakstur Íslandsmiða að verðmæti á ári eru rúmir 100 milljarðar ísl. kr. Ljóst má vera að nákvæmlega ekkert hefur gengið eftir með tilgang kvótalaganna- þvert á móti - allt hefur gengið í þveröfuga átt.
Og hvernig má það vera að skuldsetning útgerðarinnar er nærri 10 sinnum meiri en afraksturinn /fiskveiðiár ?
Uppkaup á kvóta er ein ástæðan - kílóverð var komið 4500 ísl kr árið 2008 og síðan hlutabréfakaup útgerðanna í útrásarævintýrinu- alls óskylt útgerð fiskiskipa. Þessa fjármuni getur útgerðin aldrei borgað til baka.
Bankarnir eiga allan útgerðapakkann á Íslandi- þjóðin sjálf. Kvótakerfið hefur með öllu brugðist og það traust sem LÍÚ var sýnt með umsjón auðlindarinnar- er með öllu af þeim rúið.
Og nú í kreppunni á að bæta við 30 þús tonna þorskkvóta. LÍÚ er afhentur þessu kvóti - í sína botnlausu óráðsíu.
Ráðamenn hafa ekkert lært á efnahagshruninu- allt við það sama.
Það sem hefði átt að gera - er að hefja uppstokkun á þessu hryllilega kvótakerfi
Svona bátar áttu á fá viðbótarkvótann
Setja þessi 30 þús./árs tonna af þorski á frjálsan markað. Allir hefðu heimild til að kaupa veiðiheimildina.
Kvótagjaldið rynni í ríkissjóð - sem síðan ráðstafaði afrakstrinum í ýmis atvinnutækifæri - um landið allt.
Hinum úthlutaða (gjafa) kvóta yrði síðan smá saman úthlutað með sama hætti- enda á þjóðin allan kvótann með veðum í hinni fallit útgerð...
LÍÚ hefur fyrirgert öllu sínu tilkalli til þess kvóta sem var... þeir ráðstöfuðu honum öllum í hlutabréf sem með öllu voru óskyld útgerð til fiskveiða- sumir í bílaumboð og einkaþyrlukaup... Útgerðin var veðsett fyrir gróðafíkn útrásarbankanna, sem nú eru komnir á öskuhauga sögunnar.
Stjórn LÍÚ fagnar kvótaaukningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.1.2009 kl. 00:02 | Facebook
Athugasemdir
Lög um stjórn fiskveiða.
I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
Það er kristalskírt að þetta hefur með öllu brugðist enda var þetta aldrei í alvörunni tilgangurinn.
Hallgrímur Guðmundsson, 16.1.2009 kl. 22:15
já, þetta er algjör skandall!!!
Nær hefði verið að dreifa þessum auka þorskkvóta á smábátana.
Ímyndið ykkur hverskonar atvinnu 30.000 tonn hefðu getað skapað fyrir fólkið í landinu ef þessi
30.000 tonn hefðu verin sett á frjálsan markað.
Nú að að gefa þessum fáu útvöldu ennþá meiri þork gefins. Er hættur að botna í þessu samfélagi okkar.
Sjávarútvegsráðherra er algjör ræfill og gunga, segi ég og skrifa
kv. Jónþór Eiríksson
Jónþór Eiríksson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 03:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.