20.1.2009 | 09:49
Fjöldahandtökuskipanir í kjölfar bankahrunsins
Frétt af mbl.is
Milljarðalán án áhættu
Útvaldir viðskiptavinir Kaupþings, þar á meðal Ólafur Ólafsson, annar stærsti eigandi bankans, fengu milljarða króna að láni til að gera samninga sem þeir gátu ekki tapað á.
Lesa meira
Nú stendur sýslumaðurinn í Selfossi í fyrstu fjöldahandtökunum sem tengjast bankahruninu á Íslandi. 340 Íslendingar til heimilis á Suðurlandi eru á handtökulistanum.
Ákærurnar eru vegna áranguslaus fjárnáms hjá viðkomandi.
Ekki er þetta fólk nú fyrrum útrásarbankamenn eða þeirra stærstu viðskiptavinir- þetta fólk telst til almennings- sem væntanlega hefur komist í greiðsluþrot til þessara fv.einkabanka.
Lög skulu gilda í landinu. En réttlætiskennd er misboðið hjá fólkinu í landinu.
Ekki einn einasti þeirra sem höfuðábyrgð bera á efnahagshruni Íslands er þessa heiður aðnjótandi að lögreglan sjái ástæðu til að hýsa þá - meðan stórfelld vafasöm viðskipti þeirra eru rannsökuð.
Viðskiptamódel Ólafs Ólafssonar,Sigurðar Einarssonar og sheiksin frá Qatar er í meira lagi grunsamlegt .
Þeim eru lánaðir tugir milljarða kr. , án heimilda, án veðtrygginga út úr Kaupþingi til einkabraks- til stórfelldar eignatilfærslu í þeirra eigin vasa- á síðustu dögum fyrir hrun.
Hluthafar Kaupþings borga tapið .þ.á.m gamla fólkið á Íslandi með tapi á lífeyrisfjármunum sínum. Og auðvitað fór gerningurinn um skattaparadís á Jómfrúeyjum.
Tap hluthafa Kaupþings m.a lífeyrissjóaðanna er áætlað 37,5 milljarða kr. Grunur er um stórfelldan þjófnað þessara ofangreindu manna.
Þess er krafist að þeir verði handteknir nú þegar og verði í gæslu það til öll þeirra mál verða upplýst , af saksóknara. Yfirvöldum ber að forgangsraða málum með tilliti til mikilvægis og stærðar og byrja hjá þeim stóru...
Síðan mætum við , almenningur á Austurvöll í dag þ. 20 . janúar 2009 og fögnum endurkomu alþingismanna og kvenna til starfa að nýju eftir mánaðarlangt jólaleyfi-- og klöppum rækilega fyrir framtakinu.
Ríkisstjórn Íslands segi afsér hið fyrsta og kosningar í vor
Milljarðalán án áhættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:28 | Facebook
Athugasemdir
Er við sýslumann að sakast? Sýslumenn setja ekki lög en þeirra hlutverk er að fylgja þeim eftir. Á meðan ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar hafa meiri áhuga á að berjast fyrir aðildarumsókn í ESB en að taka á vanda fjölskyldna mun fjárnámum fjölga með öllum þeim afleiðingum og kostnaði sem því fylgir.
Árni Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.