6.5.2009 | 11:04
Sægreifarnir og Morgunblaðið
Kvótakerfi ekki umbylt
Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2009 | 5:30
Þrátt fyrir að báðir stjórnarflokkarnir séu með svonefnda fyrningarleið á stefnuskrá sinni ætla Vinstri græn og Samfylkingin ekki að ráðast í róttækar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á næstunni, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Lesa meira
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Morgunblaðið er nú að mestu í eigu sægreifanna sem hafa náð undir sig einokun á fiskveiðum í landhelgi Íslands.
Blaðið var keypt fyrir nokkru af nýju ríkisbönkunum með 3,5 milljarða skuldaafslætti sem skattgreiðendur síðan greiða. .
Mikið vald fylgir því að eiga stóran fjölmiðil og ekki ónýtt þegar verja þarf hagsmuni viðkomandi. Allt þetta má sjá í Morgunblaðinu í dag þ. 6.maí 2009.
Stór forsíðufyrirsögn " Kvótakerfi ekki umbylt " og síðan á innsíðum eru uppbyggilegar greinar til stuðnings núverandi kvótakerfi.
Allt frá því núverandi fisveiðikerfi var komið á með því að gefa fáeinum útvöldum einkaaðgang að Íslandsmiðum til nýtingar á auðlindinni - hafa staðið harðar deilur meðal þjóðarinnar um málið. Framsal á veiðiheimildum sem lögfest var uppúr 1990 er nú talið upphafið að því efnahagshruni sem þjóðin öll sýpur nú seyðið af .
Báðir stjórnarflokkarnir hafa á sínum stefnuskrám að umbylta þessu kvótakerfi og þá með þeirri grunnáherslu að auðlindin sé og verði ávallt eign þjóðarinnar.
Sérhagsmunaklíkurnar í LÍÚ eru þessu andsnúnar. Þessir sérhagsmunir sægreifanna eru ein stóra ástæða þess harða áróðurs sem haldið er uppi gagnvart aðild Íslands að ESB- sérhagsmunir ofar þjóðarhagsmunum er þeirra baráttumál.
Stjórnarflokkarnir hafa lagt til fyrningaleið til að endurheimta kvótann aftur til þjóðarinnar- 5% /ári í 20 ár. Sá kvóti færi síðan á leigumarkað sem opinn væri öllum . Þessu berjast sérhagsmuna-sægreifarnir gegn og hafa keypt sér stóran og öflugan fjölmiðil , Morgunblaðið í stríðið gegn almenningi - þjóðinni.
Við sjáum eina orrustuna háða á síðum Moggans í dag....
Nú er það svo að sjávarútvegurinn er yfirveðsettur í kjölfar bankahrunsins . Talið er að skuldirnar nemi um þriggja ára brúttóafrakstri fiskveiðanna . Skuldir þessar eru að mikluleiti til komnar vegna innbyrðis kvótakaupa útgerðanna.
Hæst fór verðlag kvótans í 4500 kr/kg af óveiddum fiski. Þetta verðlögðu þeir sjálfir og tóku lán fyrir. Nú eru þessar aflaheimildir að mestu í eigu ríkisbankanna og erlendra banka sem veð.
Ýmislegt bendir til að varlega verði farið í að innheimta kvótann í núverandi efnahagsástandi af hálfu ríkisstjórnarinnar- byrjað verði á að kvóti útgerða sem fara á hausinn renni til þjóðarinnar og síðar verði 5 % reglunni beitt- sem sé milduð aðferð.
Kvótakerfi ekki umbylt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.