Segir Seðlabanka Ísl. hafa logið til um stöðu Landsbankans fyrir hrun.

Segir Íslendinga hafa logið að Hollendingum

mynd Arnold Schilder.

Fyrrverandi stjórnarformaður hollenska fjármálaeftirlitsins segir að Íslendingar hafi logið að H trekk í trekk þegar þeir síðarnefndu óskuðu eftir upplýsingum um ástand íslenska fjármálakerfisins, misserin fyrir hrun. Þetta kom fram máli Arnolds Schilder sem í dag bar vitni fyrir rannsóknarnefnd á hollenska þinginu sem rannsakar fjármálakreppuna sem gengið hefur yfir heiminn.

„Íslenskir kollegar okkar, ég get ekki orðað það öðruvísi, lugu að okkur," sagði Schilder frammi fyrir nefndinni en yfirheyrslunum er sjónvarpað. Hollendingarnir spurðu ítrekað um stöðu Landsbankans, í ljósi þess að bankinn var að bjóða Hollendingum að leggja inn á Icesave reikningana. „Við spurðum þá margsinnis hvernig gengi og alltaf var sama svarið, að það væri allt í himnalagi."

Schilder sagði að seðlabankar í öðrum löndum hefðu einnig átt það til að fegra hlutina en að Íslendingar hefðu verið sér á parti, vegna þess hve Icesave málið var stórt í sniðum.

-------------------------------------------------------------------------------------------------

Þetta eru nöturlegar fréttir frá rannsóknarnefnd Hollendinga um Icesave reikningana þar í landi.

Seðlabanki Íslands fullyrti allt frá stofnun þessara Icesave reikninga að Landsbankinn væri traustur og með sín fjármál í fullkomnu lagi-ekkert að óttast fyrir Hollendinga.

Á sama tíma er Seðlabankastjóra Íslands fullljóst að bankakerfið Íslenska riðar til falls- eða svo hefur hann ítrekað fullyrt í fjölmiðlum- eftir Hrun.  Þessi þjóð er ekki aðeins spillt í augum þjóðanna í Evrópu- hún er gjörspillt- Lygarar.  

Ekki bæta þessar nýju staðhæfingar stöðu okkar gagnvart greiðslu á Icesave skuldinni-þvert á móti....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband