4.10.2010 | 18:30
Mótmælaalda í uppsiglingu
Girðing um Alþingishúsið
Innlent | mbl.is | 4.10.2010 | 17:51
Álgirðing hefur verið sett umhverfis Alþingishúsið en búist er við fjölmennum mótmælum á Austurvelli í kvöld þegar umræða um stefnuræðu forsætisráðherra fer fram.
Lesa meira
Nú er Alþingi farið að bera svipmót af Litla Hrauni. Þar eru skaðlegir menn lokaðir inni og öflug ókleif girðing umhverfis.
Nú er að sjóða uppúr í þjóðfélaginu. Bankarnir og auðmenn eru ríki í ríkinu. Milljarða afskriftir skulda til handa auðmönnum á meðan heimili fólksins eru miskunnarlaust sett í nauðungarsölu . Gríðarlegur ójöfnuður er staðreynd. Matarskortur hrjáir mörg heimilin og börnin líða. Í okkar litla samfélagi getur svona ranglæti ekki þrifist. Stjórnvöld hafa þverskallast við að taka á vandanum. Nú er komið nóg . Fólkið rís upp og nú verður fjölmennt á Austurvöll og mótmælt -hávært-undir stefnuræðu forsætisráðherra. Gera má ráðfyrir að mótmælin stigmagnist - þar til úrlausn fyrir fólkið ´nær fram að ganga.... Hvað þarf mikið til ????
Girðing um Alþingishúsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.10.2010 kl. 17:43 | Facebook
Athugasemdir
Hvað þarf mikið til?
Jú, sá tími er liðinn að þú byðjir bæjarstjórann um breytingar, þú þarft að breyta sjálfur. Ég spái því að kerfið verði áfram plástrað með hag auðvaldsins í huga þar til að við förum inn í bankana, alþingi o.fl. og byltum kerfinu sjálf á okkar forsendum. Verði það ekki gert, mun fara eins fyrir þessum mótmælum og fór fyrir búsáhalda"byltingunni"
Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 23:05
lýðræði er þegar fólkið í landina tekur stóru ákvarðanirnar eins og um icesave málið
hver skal borga sitt og samningar skulu standa þegar ólöglegt er tekið burt ekki að reikna allt upp á nýtt það þíðir að bankastjórar eru bara skúringakellingar ekkert að mark hvað þeir semja umm....
bpm (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 01:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.