Sjávarútvegsráðherra og stjórnarsáttmálinn.

Af fréttavef RÚV.

Boðar víðtækt samráð um fyrningu

Boðar víðtækt samráð um fyrningu Jón Bjarnason.

Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra boðar víðtækt samráð um endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar með það að markmiði að ná góðri sátt um sjálfbærar veiðar og trygga atvinnu fólks í sjávarbyggðunum. Hann vill ekki slá neinu föstu um innköllun aflaheimilda.

Stjórnarflokkarnir héldu hinni svonefndu fyrningarleið á lofti í aðdraganda kosninganna í vor. Hún byggist í grófum dráttum á því að veiðiheimildir verði innkallaðar í áföngum og endurútdeilt eftir nýjum reglum. Jón Bjarnason var á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun spurður hvað liði áformum um fyrningarleið. Hann ítrekaði að mikið samráð verði haft um fyrningarleiðina. Farið verði hægt í því máli. Jón lagði áherslu á að enginn ætti fiskveiðiauðlindina nema þjóðin. Núgildandi fiskveiðistjórnkerfi sé gallað og hafi leitt mikinn vanda yfir byggðir landsins í kjölfar kvótasölu. Taka verði á vandamálunum í samstarfi við alla hlutaðeigandi.

Hér er eitthvað frjálslega farið með  samstarfssamning stjórnarflokkanna af hálfu sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra á fyrsta virkum starfsdegi nýrrar ríkisstjórnar.

Í stjórnarsáttmálanum , sem er óvenju viðamikill, segir:

"Endurskoðun mun verða unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010. Skipaður verði starfshópur er vinni að endurskoðuninni og kalli til samráðs hagsmunaaðila og sérfræðinga. "

Er sjávarútvegsráðherra eitthvað skelkaður við LÍÚ sérhagsmunaklíkuna sem nú er lögst í áróðursherferð til varnar  kvótakerfinu- kerfinu þar sem þeir hafa veðsett fiskinn í sjónum 3 aflaár fram í tímann með sjávarútvegsfyrirtækin  yfirveðsett í innlendum og erlendum bönkum ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það þarf mann með kjark í þetta verkefni. Jón býr ekki yfir þeim eiginleikum svo mikið er víst.

Finnur Bárðarson, 12.5.2009 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband