Fv. bankastjóri Kaupþings gefur Seðlabanka Íslands ráð.

"Hreiðar Már segir vaxtastefnu vitleysu

Afnám verðtryggingar, lækkun stýrivaxta og breyting erlendra lána í krónur eru nauðsynlegar efnahagsaðgerðir að mati Hreiðars Más Sigurðssonar.

Efnahagsmál: Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, segir að vaxtastefna Seðlabanka Íslands sé með ólíkindum.  (Fréttablaðið 29.08.2009)"

Þetta er forsíðufréttin í Fréttablaðinu í dag 29.08.2009 .

Nú eru útrásarvíkingar og þar með eigendur Fréttablaðsins orðnir langeygir eftir að fá að ljúka við að sópa öll verðmæti út úr þjóðinni. Helst hafa þeir augastað á lífeyrissjóðunum.

Með því að afnema verðtryggingu þeirra og lækka almenna vexti  og  undir verðbólgustig- þá er auðveldur leikur að fá alla þá fjármuni á silfurfati. 

Þessum mönnum er greinilega ekki alls varnað - eftir að hafa sett heila þjóð á hausinn og á vonarvöl.

Í gær var verið að gangast við ábyrgð þjóðarinnar á ICESAVE reikningnum sem þeir stofnuðu til í Hollandi og Bretlandi.

Og nú á haustmánuðum verður mesti niðurskurður fjárlaga sem þjóðin hefur kynnst frá upphafi.

Allt í boði þessara banka og útrásarglæframanna-þar með talinn þessi Heiðar Már Sigurðsson fv. bankastjóri.

Og hver skyldi vera "eigandi " Fréttablaðsins.... Jón Ásgeir Jóhannesson..útrásagúrú og stærsti gjaldþrota einstaklingur Íslands...  Þá höfum við samhengið í málflutningi þessa snepils....

Nú þegar hefur lífeyrir rýrnað um 25-30% vegna þessara gjaldþrota og enn meiri rýrnun er framundan--- allt í boði þessara fjárglæframanna .  

Vonandi fer senn að líða að því að þessir fjárglæframenn fari að svara til ábyrgðar- fyrir dómstólum...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband