Kosningaáróður Moggans hafinn- sægreifarnir hræddir.

Nú er kosningaáróður eigenda Morgunblaðsins hafinn.  

Birt er heilsíða í sunnudags Mogga þar sem innihaldið , ímyndaðar skattahækkanir  núverandi ríkisstjórnarflokka Samfylkingar og VG eru settar upp í  ýmsum dæmum. 

Þess hefur verið beðið allt frá því kvótagreifar innan LÍÚ útgerðarauðvaldsins  fengu að kaupa Morgunblaðið af fyrrum Glitnisbanka með góðum afslætti- hvernig nota ætti blaðið til hagsbóta fyrir eigendurna. 

 Sem kunnugt er þá hafa báðir ríkisstjórnarflokkarnir það framalega á sínum stefnuskrám að leysa upp þetta gjafakvótakerfi - kerfi þar sem fáum útvöldum voru gefnir milljarðar af þjóðareign.

Margir telja það upphafið að efnahagshruninu sem nú hefur komið allri þjóðinni á hnén.  Nú hafa þessir „kvótaeigendur" veðsett fiskinn í sjónum 7-8 veiðiár fram í tímann eða sem nemur 7-800 milljörðum króna. 

Ljóst er að endurgreiðsla þessarar skuldsetningar ,sem að mestu er tilkomin vegna hlutabréfakaupa í  hinni gölnu útrás , mun lenda á almenningi  að greiða með einum eða öðrum hætti.

Eins og staðan er í dag eru fiskveiðiheimildirnar að mestu komnar í veð til erlendra lánastofnana.

Nú er stefnt að því að allar auðlindir þjóðarinnar, orkan í fallvötnum,jarðvarmi , vatnið og auður hafsins verði  óumdeilanlega eign þjóðarinnar allrar - þjóðinni allri til hagsældar.Fyrir því hafa Samfylkingin og VG- forystu.

LÍÚ auðvaldið leggst gegn því að sérhagsmunum þess - yfirráðum yfir fiskiauðlindinni - verði komið að nýju til þjóðarinnar. 

Eitt baráttutækið til að vinna  sérhagsmunum sínum lið er m.a að kaupa fjölmiðil sem hægt er að beita  gegn almenningi  við þessa sérhagsmunagæslu.  

Við sjáum aðferðina nú í sunnudags Mogganum.   Uppskáldaðar  skattahækkunarálögur á almenning - missi Sjálfstæðisflokkurinn völdin- Flokksins sem eftir 18 ára valdasetu við „stjórn" efnahagsmála - skilur landið eftir í efnahagslegri rúst.

Rúið trausti og trúverðugleika á alþjóðavettvangi.   Við almenningur fylgjumst með næstu heilsíðuáróðurs  „fréttum" Moggans fram að kosningum - og brosum að barnaskapnum....

Innganga Íslendinga í ESB og upptaka evru með Seðlabanka Evrópu sem bakhjarl til þrautavara -er leið þjóðarinnar frá því hörmungarástandi sem ella yrði hér næstu áratugina .  Bent er á að í gangi er á netinu undirskriftasöfnun þeirri leið til stuðnings- á www.sammala.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Sem kunnugt er þá hafa báðir ríkisstjórnarflokkarnir það framalega á sínum stefnuskrám að leysa upp þetta gjafakvótakerfi - kerfi þar sem fáum útvöldum voru gefnir milljarðar af þjóðareign, ritar þú.

Ég mundi nú vilja fá þetta skriflegt frá Steingrími J. Sigfússyni fyrir kosningar, mundir þú geta gengið í það að útvega það fyrir mig.

Kveðja, Þorsteinn Gunnarss

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.4.2009 kl. 09:40

2 Smámynd: Sævar Helgason

Þorsteinn  .  Ekki er ég VG fylgissveinn, en hér er úrdráttur úr þeirra kosningastefnuskrá, Hún er, hvað kvótamálin varðar, ekki mjög langt frá Samfylkingunni. Allavega báðir flokkarnir fara mjög fyrir brjóstið á sérhagsmunaaðilum í auðlindamálum....   

" Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur lengi talið mikilvægt að ráðist verði í úrbætur á núverandi fiskveiðistjórnarkerfi til að ná fram réttlátara aðgengi að nytjastofnum á Íslandsmiðum en nú er. Varanlegasta breytingin, og sú sem beinast liggur við að innleiða, er að hefja endurráðstöfun aflaheimilda og eftir atvikum að koma á annars konar afnotarétti, að undangenginni  innköllun aflaheimilda um leið og gætt sé jafnræðis. Fyrir utan þá meginleið sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur talað fyrir, og nefnist hér innköllun og endurráðstöfun, er flokkurinn tilbúinn að skoða aðrar leiðir til innköllunar fiskveiðikvótans verði það til að flýta fyrir nauðsynlegum umbótum á fiskveiðistjórnarkerfinu."

Sævar Helgason, 19.4.2009 kl. 10:13

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Takk fyrir svarið Sævar. Ég var í málefnanefnd Alþýðubandalagsins um sjávarútvegsmálefni á sínum tíma. Ég verð bara að upplýsa það að mér fannst nú að Steingrímur væri ekki fyrsti maður sem vildi breytingar þá þessum málefnum.

Þess vegna tel ég rétt að hafa strangar gætur á honum. 

Sjáum athafnir hans núna í kvótamálefnum landbúnaðarins. Allt í einu er undirritaður öllum kjósendum á óvörum búvörusamningur.

Við stöndum frammi fyrir kreppu og vitum ekki hvernig hún þróast. Það gæti t.d þurft að gera breytingar á landbúnaðarframleiðslunni svo við tökum dæmi eða gera ýmsar hliðarráðstafanir. Hvað um áburðarkaup bænda í vor?. En þá er öllu skellt í lás 10 fyrir kosningar. Samningsaðiljar virðast því ætla að loka málinu með þessum hætti.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.4.2009 kl. 12:19

4 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Kíkið á viðtal Agnesa Bragadóttur við Jóhönnu Sigurðardóttir á mbl.is í vefupptöku. Það er bara eins og Agnes sé á launum hjá Sjálfstæðisflokknum, manneskjan er stétt sinni til skammar.

Jón Gunnar Bjarkan, 22.4.2009 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband