Fyrstur Íslendinga að róa á kayak umhverfis Ísland ?

Það var bjart, stillt veður og sjórinn sem spegill þegar kayakræðarinn Gísli H. Friðgeirsson tók fyrsta áratogið kl. 9.00 að morgni 1.júní 2009 frá Eiðinu á Geldinganesi, að því takmarki að róa einn síns liðs á kayak umhverfis Ísland.

 Gert sjóklárt fyrir róðurinn langa

hringro_ur_um_sland_002.jpg

 

 

 

 Fyrsta áratogið á leið umhverfis Ísland

hringro_ur_um_sland_005_856292.jpg

 

 

 

Gísli mun vera fyrstur Íslendinga sem leggur í leiðangur sem þennan- að róa hringinn. Nokkrir erlendir menn og konur hafa unnið það afrek að bera sigur úr býtum við það erfiða verkefni sem hringróður um Ísland ,er.

Erfiðasti áfanginn á hringróðrinum er frá Hornafirði og allt til Þorlákshafnar eða með söndunum miklu, sem spanna alla þá leið.

En Gísli var hvergi banginn þegar lagt var af stað.

Við vorum tveir sem lögðum úr vör með honum- undirritaður og Páll formaður Kayakklúbbsins. Ég kvaddi þá við norður enda Geldinganess en Páll stefndi á að róa með Gísla til Akraness.

Leið þeirra mun liggja um Kollafjörðinn fyrir Brautarholtið og hafa kaffistopp í Andriðsey í Hvalfirði. Þaðan verður síðan stefnan sett á þverun Hvalfjarðar og til Akraness.

Þá mun Gísli meta stöðuna og stefna jafnvel á Straumfjörð á Mýrum til næturdvalar. Ef hann nær því verður að baki mjög löng dagleið eða um 55 km róður.

En um það fréttum við síðar.

Á svona löngum róðri er margt sem fyrir augu ber - fagurt og stórbrotið landslag-mikið fuglalíf og sennilega verða hvalir sýnilegir, af ýmsum stærðum og tegundum Gísli stefnir á að verða kominn í Stykkishólm þann 8. júní nk.

En það er eins og oft áður "Kóngur vill sigla en byr ræður "- Við fylgjumst spennt með...


Fiskveiðistjórnun og fyrningaleið aflaheimilda.

Það er þungur áróður á síðum  Morgunblaðsins ,málgagns útgerðarmanna,þessa dagana.  Hið illræmda og skaðlega kvótakerfi  er varið sem heimsendir verði , leyfi ríkisstjórnin sér að færa veiðiheimildirnar til eigenda þeirra- íslensku þjóðarinnar.

Í 1. gr. Fiskveiðistjórnunarlaga segir svo :

Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar ... Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.

Þegar kvótakerfinu var komið á fyrir rúmum 20 árum var  það gert vegna ofveiði og offjárfestingar í sjávarútvegi.

Takmörkun veiða myndi koma í veg fyrir að of nærri veiðistofnum yrði gengið. Hagkvæmni fjárfestinga úgerðarinnar myndi aukast.  Þeir sem veiðiheimidir fengu í upphafi voru þeir sem áttu skip með 3ja ára veiðireynslu.

Þessar heimildir voru veittar án nokkurrar gjaldtöku- skipaeigendur fengu kvótann gefins. Sjómenn eða fiskverkafólk fékk enga hlutdeild né byggðalög landsins.

Þessu fylgdu fá vandamál í upphafi. Eðlisbreyting verður árið 1990 þegar kvótahafar fá það samþykkt að framsal veiðiheimilda verði heimilt- kvótinn öðlast verðgildi- það er hægt að selja hann og veðsetja.

Framsalið er upphafið að allri ógæfu þessa fyrirkomulags. Veiðiheimildir fóru að ganga kaupum og sölum ,fyrir offjár og fjármunir að leita út úr greininni.

 Byggðalög voru lögð í rúst víða um landið þegar veiðiheimildir , oft eins skipaeiganda, voru seldar útúr viðkomandi bæjarfélagi.

Fólkið sat uppi með skerta atvinnu og verðlausar húseignir- réttur þess var enginn gagnvart veiðiheimildum.

Og veiðiheimildir söfnuðust á æ færri hendur. Ný stétt myndaðist ,leiguliðar aflaheimilda. Kvótahafar fóru að leigja frá sér kvótann til þeirra sjómanna sem engar höfðu veiðiheimildir. Lénsherrar í sjávarútvegi urðu til. Og kvótinn gekk í erfðir.

Talað er um að um 90 %  frumaflaheimilda hafi skipt um eigendur með sölu þeirra og því séu núverandi kvótahafar því réttmætir eigendur- þeir hafi greitt fullt verð fyrir og því séu þeirra aflaheimildir ótvíræð eign þeirra. 

Þessi tala, 90%, er stórlega dregin í efa.  Stórfyrirtæki í útgerð svo sem Grandi og Samherji eru með frumúthlutanir kvótaheimilda (gjöf) ásamt því að önnur fyrirtæki hafa sameinast þeim með sinn gjafakvóta.

Og hver er reynslan af upphafinu sem átti að vera mikill og stöðgur ársafli vegna verndunaráhrifa veiðiheimildanna (takmörkuð sókn)  og stóraukin hagkvæmni útgerða (fækkun skipa) ?

Í dag er staðan sú að veiðiheimildir hafa aldrei í sögunni verið minni vegna ástands fiskstofna og útgerðin er ofurskuldsett vegna yfirveðsetninga sem nemur milli 5-600 milljörðum króna. Stórkostleg verðmælti hafa runnið út úr greininni.

 Fræg eru dæmin með sægreifann í Vestmannaeyjum sem veðsett hefur kvótann fyrir stóru bílaumboði , luxusþyrlukaupum og rekstri og sportvöruverslun sem nýverið fór  þrot- allt óviðkomandi sjávarútvegi. Yfirveðsetning vegna hlutabréfakaupa í bankabólunni er stærsti vandi þessara kvótahafa í dag- einnig óskylt útgerð.

Þetta illræmda og stórskaðlega kvótakerfi hefur gengið sér til húðar auk þess að það innifelur mannréttindabrot að mati Sameinuðu þjóðanna. Kvótahafar í núverandi mynd hafa ekki reynst hæfir til að bera þá ábyrgð sem þeim var falin. Þjóðin vill breytingar.

Nú eru í ríkisstjórn flokkar sem hafa í stjórnarsáttmálanum að fiskveiðikerfið skuli stokkað upp . Farin skuli fyrningaleið til innlausnar á kvótanum ,5% /ári og að við framtíðar úthlutun veiðiheimilda skuli leiga ríkisins koma til og að allir sitji við sama borð .

Hinu nýja kerfi er ennfremur ætlað að styrkja byggð allt umhverfis landið. Hér þarf að vanda til verka og að allir hagsmunaðilar , útgerðarmenn, fiskvinnslan og fólkið í byggðum landsins - komi að málum.

Friður verður að ríkja um þessa mikilvægustu auðlind okkar og nýtingu hennar- hún er sameign okkar allra-ekki séreign fárra útvalinna.


Sjálfstæðisflokkurinn og endurreisnin á Íslandi.

„Jóhanna flutti gamlar fréttir"
Innlent | mbl.is | 25.5.2009 | 15:59
Bjarni Benediktsson. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í dag að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefði flutt gamlar fréttir í skýrslu sinni um efnahagsmál og gæfi þingheimi ekki mikla von.
Lesa meira

Þetta segir formaður Sjálfstæðisflokksins. 

Þetta er alveg hárrétt hjá honum. Við vissum um þetta allt saman eftir hrunið í október.

Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuðábyrgð á því ástandi sem nú er að leggja gífurlegar skuldabyrðar á alla þjóðina.

Nýjar upplýsingar segja okkur að undir stjórn Sjálfstæðisflokksins í fjármálageiranum hafi verið gerð alvarleg mistök. svo dæmi sé tekið.

Undir forystu þeirra í Seðlabankanum brunnu upp 350 milljarðar kr. skömmu fyrir hrun bankanna.

Bankastjórn Seðlabankans hafði lánað bönkunum 350 milljarða kr með veði í eigin skuldabréfum þeirra- þrátt fyrir að formaður bankastjórnarinnar hafi lýst því að hinir sömu bankar ættu sér ekki lífs von.

Bankarnir hrundu í október sl og þessir 350 milljarðar urðu að verðlausum skuldabréfapappír . Allt lendir þetta á skattgreiðendum þessa lands. Til samnburðar eru skuldinar vegna Icesave 70 milljarðar.

Nú verður þessi þjóð að standa saman við endurreisnina. Það ætti Sjálfstæðisflokkurinn að skilja mæta vel. 

Hinn nýi formaður Bjarni Benediktsson er vel í stakk búinn til þeirra verka- ef hann vill.


mbl.is „Jóhanna flutti gamlar fréttir"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MótorMaxverslun sægreifa fer í greiðsluþrot- kvótinn að veði.

 Frétt af mbl.is  Mótormax hélt útsölu en fór svo í þrot

Viðskipti | Morgunblaðið | 14.5.2009 | 7:30
Magnús Kristinsson. Mótormax ehf. hefur farið fram á gjaldþrotaskipti og búið er að skipa skiptastjóra yfir þrotabú félagsins. Verslun Mótormax verður í kjölfarið lögð niður og rekstri félagsins hætt. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins munu allt að tuttugu manns missa vinnuna

Mótormax ehf. var í eigu Magnúsar Kristinssonar, sem á einnig Toyota á Íslandi. Félagið rak stórverslun í Reykjavík sem seldi meðal annars fjórhjól, götuhjól, sæþotur, hjólhýsi, húsbíla, fellihýsi, hraðbáta og annan mótorsportvarning. Risaútsala var hjá versluninni um liðna helgi undir nafninu „Miklihvellur." Þar var allt að 70 prósent afsláttur veittur á vörum. thordur@mbl.is

Lesa meira

Þetta er ein birtingamynd kvótabrasksins.  Magnús Kristinsson er sægreifi frá Vestmannaeyjum og einn af stærri "eigendum " fiskveiðikvótans. Braskið með kvótann tekur á sig ýmsar myndir. Hann er veðsettur til kaupa á bílaumboðum, þyrlukaupum, rándýrum sporttólasölum og s. frv. Nú er þetta allt að fara á hausinn. Og hverjir borga ?  Almenningur ? . Mjög sennilega.

Sjávarútvegurinn er yfirveðsettur a.m.k sem nemur verðmæti heildarafla á Íslandsmiðum í þrjú fiskveiðiár. Veðin eru bæði hjá íslenskum og erlendum bankastofnunum. Íslendingar eiga innlendu veðin en þau sem eru í erlendum bönkum eru í þeirra eign. Ekki er seinna vænna en að ríkisstjórnin hraði sér í þá vinnu að yfirtaka allar fiskveiðiheimildir samkvæmt núverandi kvótakerfi og taki upp fyrningaleiðina sem svo er nefnd. Leik sægreifanna með fjöregg þjóðarinnar verður að ljúka- þó fyrr hefði verið....


mbl.is Mótormax hélt útsölu en fór svo í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparisjóðurinn Byr og stofnfjáreigendur

Frétt af mbl.is

Hiti á aðalfundi Byrs
Viðskipti | mbl.is | 13.5.2009 | 17:51
Jón Kristjánsson, stjórnarformaður Byrs. Töluverður hiti er í fundargestum á aðalfundi Byrs og hafa stjórn og stjórnendur verið innt svara um stjórnun sjóðsins á síðasta ári. Hafa fundarmenn áhyggjur af stöðu lána, sem stofnfjáreigendur tóku þegar stofnfé var aukið um þarsíðustu áramót. Hafa þessi lán hækkað mikið með falli á gengi krónunnar.
Lesa meira

 ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 Það er með ólíkindum að þetta Sparisjóðsmál hafi ekki fengið alvarlega opinbera rannsókn,   

Menn virðast hafa getað  hirt fjármuni í eigu almennings- svo tug milljörðum skipti... og stungið í eigin vasa...

Meðfylgjandi er tilvitnun í Eyjubloggarann Gunnar Axel Axelsson ,sem gert hefur faglega skoðun á málinu.

http://blog.eyjan.is/gunnaraxel/2009/05/12/byr-the-final-chapter/


mbl.is Hiti á aðalfundi Byrs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjávarútvegsráðherra og stjórnarsáttmálinn.

Af fréttavef RÚV.

Boðar víðtækt samráð um fyrningu

Boðar víðtækt samráð um fyrningu Jón Bjarnason.

Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra boðar víðtækt samráð um endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar með það að markmiði að ná góðri sátt um sjálfbærar veiðar og trygga atvinnu fólks í sjávarbyggðunum. Hann vill ekki slá neinu föstu um innköllun aflaheimilda.

Stjórnarflokkarnir héldu hinni svonefndu fyrningarleið á lofti í aðdraganda kosninganna í vor. Hún byggist í grófum dráttum á því að veiðiheimildir verði innkallaðar í áföngum og endurútdeilt eftir nýjum reglum. Jón Bjarnason var á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun spurður hvað liði áformum um fyrningarleið. Hann ítrekaði að mikið samráð verði haft um fyrningarleiðina. Farið verði hægt í því máli. Jón lagði áherslu á að enginn ætti fiskveiðiauðlindina nema þjóðin. Núgildandi fiskveiðistjórnkerfi sé gallað og hafi leitt mikinn vanda yfir byggðir landsins í kjölfar kvótasölu. Taka verði á vandamálunum í samstarfi við alla hlutaðeigandi.

Hér er eitthvað frjálslega farið með  samstarfssamning stjórnarflokkanna af hálfu sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra á fyrsta virkum starfsdegi nýrrar ríkisstjórnar.

Í stjórnarsáttmálanum , sem er óvenju viðamikill, segir:

"Endurskoðun mun verða unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010. Skipaður verði starfshópur er vinni að endurskoðuninni og kalli til samráðs hagsmunaaðila og sérfræðinga. "

Er sjávarútvegsráðherra eitthvað skelkaður við LÍÚ sérhagsmunaklíkuna sem nú er lögst í áróðursherferð til varnar  kvótakerfinu- kerfinu þar sem þeir hafa veðsett fiskinn í sjónum 3 aflaár fram í tímann með sjávarútvegsfyrirtækin  yfirveðsett í innlendum og erlendum bönkum ?


Kvótagreifar óttast "móðuharðindi " fái aðrir að veiða fiskinn.

Atvinnulíf sjávarplássa lagt í rúst á 7 árum

- Bæjarstjóri Vestmannaeyja víkur að eignarupptöku og framsali nýtingaréttar til erlendra þjóða  

Bæjarfélag sem staðið hefur af sér eldgos, sjórán og margskonar óáran í gegnum árhundruðin stendur nú enn á ný frami fyrir vá sem kann að valda ómældum búsifjum. ...

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Textinn hér að ofan er afritaður af  Viðskiptablaðinu, á vefnum.

Er allt í lagi með svona málflutning  og ætlast menn til að þeir séu teknir alvarlega?

Kvótagreifarnir eru nú búnir að koma sér í þá stöðu ,almennt, að hafa veðsett óveiddan fiskinn í sjónum í landhelgi Íslands- sem nemur 3 x ársafla,brúttó. 

Veðin eru bæði í íslenskum og erlendum bönkum og því eign þjóðarinnar.

Fiskimiðin eru eign þjóðarinnar allrar. Það kvótakerfi sem við lýði hefur verið - hefur verið einokað við fáa útvalda og greinin að öðruleiti lokuð.

Þessir kvótagreifar hafa síðan að eigin geðþótta leigt út kvótann til kvótalausra sjómanna á okurprís og gert sjómenn að lénsþrælum að gamalli fyrirmynd.

Nú eru upp háværar kröfur um breytingar og deila þessum veiðum út með öðrum og réttlátari hætti.

Stefnt er að því að fara fyrningaleið- að fyrna 5% kvóta á ári- í 20 ár. Það þarf enga kvótagreifa til að sjá um fiskveiðar í landhelgi Íslands- hér hefur verið veiddur fiskur allt frá árinu 870 og til dagsins í dag. Notast hefur verið við ýmsar aðferðir-

Nú breytum við til- aukum mannréttindi og eflum byggðir landsins með jöfnum gæðanna. Réttlæti í stað ranglætis. Það kemur ný ríkisstjórn til valda á morgun.


Sægreifarnir og Morgunblaðið

Kvótakerfi ekki umbylt
Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2009 | 5:30
Mynd 167159 Þrátt fyrir að báðir stjórnarflokkarnir séu með svonefnda fyrningarleið á stefnuskrá sinni ætla Vinstri græn og Samfylkingin ekki að ráðast í róttækar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á næstunni, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Lesa meira

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Morgunblaðið er nú að mestu í eigu sægreifanna sem hafa náð undir sig einokun á fiskveiðum í landhelgi Íslands.

Blaðið var keypt fyrir nokkru af nýju ríkisbönkunum  með 3,5 milljarða skuldaafslætti sem skattgreiðendur síðan greiða. . 

Mikið vald fylgir því að eiga stóran fjölmiðil og ekki ónýtt þegar verja þarf hagsmuni viðkomandi.  Allt þetta má sjá í Morgunblaðinu í dag þ. 6.maí 2009. 

Stór forsíðufyrirsögn " Kvótakerfi ekki umbylt " og síðan á innsíðum eru uppbyggilegar greinar til stuðnings núverandi kvótakerfi.

Allt frá því núverandi fisveiðikerfi var komið á með því að gefa fáeinum útvöldum einkaaðgang að Íslandsmiðum til nýtingar á auðlindinni - hafa staðið harðar deilur meðal þjóðarinnar um málið.  Framsal á veiðiheimildum sem lögfest var uppúr 1990 er nú talið upphafið að því efnahagshruni sem þjóðin öll sýpur nú seyðið af .

Báðir stjórnarflokkarnir hafa á sínum stefnuskrám að umbylta þessu kvótakerfi og þá með þeirri grunnáherslu að auðlindin sé og verði ávallt eign þjóðarinnar.

Sérhagsmunaklíkurnar í LÍÚ eru þessu andsnúnar. Þessir sérhagsmunir sægreifanna eru ein stóra ástæða þess harða áróðurs sem haldið er uppi gagnvart aðild Íslands að ESB- sérhagsmunir ofar þjóðarhagsmunum er þeirra baráttumál.

Stjórnarflokkarnir hafa lagt til fyrningaleið til að endurheimta kvótann aftur til þjóðarinnar- 5% /ári í 20 ár. Sá kvóti færi síðan á leigumarkað sem opinn væri öllum . Þessu berjast sérhagsmuna-sægreifarnir gegn og hafa keypt sér stóran og öflugan fjölmiðil , Morgunblaðið í stríðið gegn almenningi - þjóðinni.

Við sjáum eina orrustuna háða á síðum Moggans í dag....

Nú er það svo að sjávarútvegurinn er yfirveðsettur í kjölfar bankahrunsins . Talið er að skuldirnar nemi um þriggja ára brúttóafrakstri fiskveiðanna . Skuldir þessar eru að mikluleiti til komnar vegna innbyrðis kvótakaupa útgerðanna.

Hæst fór verðlag kvótans í 4500 kr/kg af óveiddum fiski. Þetta verðlögðu þeir sjálfir og tóku lán fyrir. Nú eru þessar aflaheimildir að mestu í eigu ríkisbankanna og erlendra banka sem veð.  

Ýmislegt bendir til að varlega verði farið í að innheimta kvótann í núverandi efnahagsástandi af hálfu ríkisstjórnarinnar- byrjað verði á að  kvóti útgerða  sem fara á hausinn  renni til þjóðarinnar og síðar verði 5 % reglunni beitt- sem sé milduð aðferð.

 


mbl.is Kvótakerfi ekki umbylt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggja jöklabréfin Helguvíkurálver ?

Eigendur jöklabréfa fjármagni álver
Innlent | mbl.is | 29.4.2009 | 11:49
Framkvæmdir við álverið í Helguvík. Bandaríska álfélagið Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, er að ræða við eigendur svonefndra jöklabréfa um að koma að fjármögnun fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík með því að breyta jöklabréfum í skuldabréf í dollurum.
Lesa meira

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hún er merkileg saga Norðuráls hér á Íslandi. 

Upphafið er að amerískur lögmaður , Kenneth Peterson, hafði keypt gamalt og úrelt álver í Þýskalandi, á brotajárnsverði- með niðurrifsákvæðum.. 

Hann leitaði víða um heim fyrir sér með að endurreisa álverið. Að lokum komu tveir staðir til greina - Venesúela og Ísland.

Með lægsta  raforkuverðið náðust samningar við Ísland. Norðurál Kenneths P. reis því hér á Grundartanga.

Það tókst síðan alveg þokkalega að koma þessu útelta álveri í rekstur hér- lágt raforkuverð skemmdi ekki fyrir-né skattaafslættir..

Og í uppsveiflu undirmálslánanna í BNA seldi Kenneth P. síðan álverið til Century Aluminium sem síðan stækkaði það verulega. 

Og nú vilja þeir reisa annað álver í Helguvík. Þrátt fyrir mikla skattaafslætti af hálfu Íslands- eru erfileikar á uppbyggingunni- það vantar fjármagn á lágum vöxtum til langs tíma.

Það fjármagn er ekki fyrir hendi í dag né næstu árin vegna óáran á Íslandi og í heimskreppunni.

  Þá leita menn upprunans .

Í stað verðlauss álvers í Þýskalandi til niðurrifs eins og í upphafi  - þá birtist nú annar bjargvættur- íslensk jöklabréf í eigu erlendra fjármagnseigenda - frosin inni í gjaldeyriskreppunni. 

En þetta fjármagns "brotajárn" má nýta sem skuldabréf í dollurum og fá þannig fjármagn til langs tíma í álversbygginguna.

Það er basl í álinu núna....


mbl.is Eigendur jöklabréfa fjármagni álver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnarflokkarnir auka fylgi sitt. Aðildarviðræður við ESB í sjónmáli ?

S- og V-listar bæta heldur við
Innlent | Morgunblaðið | 22.4.2009 | 6:30
Mynd 496306 Fylgi stjórnmálaflokkanna breytist lítið í skoðanakönnun sem birt var í gær, miðað við könnun frá því í fyrradag. Samfylkingin og Vinstrihreyfingin - grænt framboð bæta heldur við sig en Borgarahreyfingin dalar aftur.
Lesa meira

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nú eru þrír dagar þar til kjósendur ganga til kosninga. Í nýrri skoðanakönnun kemur fram að Samfylkingin er ennþá á uppleið - fær nú 31,7 % fylgi.

Vinstri Græn bæta einnig við sig eru nú með 27,5% fylgi. 

Styrkur ríkisstjórnarflokkanna er því að eflast- samanlagt með tæp 60% stuðning þjóðarinnar.

Sjálfstæðisflokkur er að hrapa niður - mælist nú með 22,5% fylgi .

Framsóknarflokkur mælist með 12,1 % fylgi. 

Borgarahreyfingin er að dala mælist nú á markalínu þess að ná mönnum á þing- eða 5% fylgi.

 Ljóst er að mikið traust er borið til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og er það verðskuldað. Það sama má segja um VG - þau hafa staðið sig vel í ríkisstjórninni.

Nú er ljóst að Evrópumálin eru að verða þungamiðja kosninganna. Æ fleirum er að verða ljóst að innganga Íslands í ESB og að tengjast hið fyrsta evrunni er okkar lífakkeri . Í Evrópumálum er forysta Samfylkingarinnar ótvíræð og stuðningur við þann flokk eru því þungavigtar atkvæði inn í ESB. 

Nú er ögurstund . Bretar eru reiðubúnir að beita sér fyrir hraðainngöngu Íslands í ESB og að gjaldmiðilsmál okkar verði sett á tryggar undirstöður. Það sama á við um Norðurlandaþjóðirnar. 

Það því þjóðinni gríðarlega mikilvægt að í þeim kosningum sem við göngum nú til- fái þau öfl sem hafa aðildarviðræður við ESB  í forgangi-  öflugt brautargengi.  Tækifæri okkar er núna.

 


mbl.is S- og V-listar bæta heldur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningaáróður Moggans hafinn- sægreifarnir hræddir.

Nú er kosningaáróður eigenda Morgunblaðsins hafinn.  

Birt er heilsíða í sunnudags Mogga þar sem innihaldið , ímyndaðar skattahækkanir  núverandi ríkisstjórnarflokka Samfylkingar og VG eru settar upp í  ýmsum dæmum. 

Þess hefur verið beðið allt frá því kvótagreifar innan LÍÚ útgerðarauðvaldsins  fengu að kaupa Morgunblaðið af fyrrum Glitnisbanka með góðum afslætti- hvernig nota ætti blaðið til hagsbóta fyrir eigendurna. 

 Sem kunnugt er þá hafa báðir ríkisstjórnarflokkarnir það framalega á sínum stefnuskrám að leysa upp þetta gjafakvótakerfi - kerfi þar sem fáum útvöldum voru gefnir milljarðar af þjóðareign.

Margir telja það upphafið að efnahagshruninu sem nú hefur komið allri þjóðinni á hnén.  Nú hafa þessir „kvótaeigendur" veðsett fiskinn í sjónum 7-8 veiðiár fram í tímann eða sem nemur 7-800 milljörðum króna. 

Ljóst er að endurgreiðsla þessarar skuldsetningar ,sem að mestu er tilkomin vegna hlutabréfakaupa í  hinni gölnu útrás , mun lenda á almenningi  að greiða með einum eða öðrum hætti.

Eins og staðan er í dag eru fiskveiðiheimildirnar að mestu komnar í veð til erlendra lánastofnana.

Nú er stefnt að því að allar auðlindir þjóðarinnar, orkan í fallvötnum,jarðvarmi , vatnið og auður hafsins verði  óumdeilanlega eign þjóðarinnar allrar - þjóðinni allri til hagsældar.Fyrir því hafa Samfylkingin og VG- forystu.

LÍÚ auðvaldið leggst gegn því að sérhagsmunum þess - yfirráðum yfir fiskiauðlindinni - verði komið að nýju til þjóðarinnar. 

Eitt baráttutækið til að vinna  sérhagsmunum sínum lið er m.a að kaupa fjölmiðil sem hægt er að beita  gegn almenningi  við þessa sérhagsmunagæslu.  

Við sjáum aðferðina nú í sunnudags Mogganum.   Uppskáldaðar  skattahækkunarálögur á almenning - missi Sjálfstæðisflokkurinn völdin- Flokksins sem eftir 18 ára valdasetu við „stjórn" efnahagsmála - skilur landið eftir í efnahagslegri rúst.

Rúið trausti og trúverðugleika á alþjóðavettvangi.   Við almenningur fylgjumst með næstu heilsíðuáróðurs  „fréttum" Moggans fram að kosningum - og brosum að barnaskapnum....

Innganga Íslendinga í ESB og upptaka evru með Seðlabanka Evrópu sem bakhjarl til þrautavara -er leið þjóðarinnar frá því hörmungarástandi sem ella yrði hér næstu áratugina .  Bent er á að í gangi er á netinu undirskriftasöfnun þeirri leið til stuðnings- á www.sammala.is


Efnahagsstefna Samfylkingarinnar - til endurreisnar

 Húsfyllir á fundi Samfylkingar
Innlent | mbl.is | 16.4.2009 | 8:39
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Húsfyllir er á fundi Samfylkingarinnar um efnahagsmál sem nú stendur yfir á Grand hótel. En þar er kynnt efni nýrrar skýrslu, Skal gert, um leiðir jafnaðarmanna í efnahagsmálum.
Lesa meira

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þetta var áhrifamikill fundur Samfylkingarinnar varðandi efnahagsmál - leiðir til uppbyggingar og endurreisnar í kjölfar efnahagshrunsins sem leitt var yfir þjóðina af frjálshyggjuöflunum - einkum SjálfstæðisFlokks og Framsóknar.

Ljóst er eftir þessa framsetningu til  uppbyggingar atvinnu og efnahafslífs á Íslandi hefur Samfylkingin tekið afgerandi forystu í stjórnmálum á Íslandi í nútíð og til framtíðar.

Bandaríska frjálshyggjuhagkerfinu sem sett hefur heimsbyggðina í dýpstu kreppu frá árinu 1929 - er hafnað.

Skandinaviskahagkerfið sem reynst hefur best allra hagkerfa - er það sem koma skal.

Grundvöllurinn að upphafinu er að hefja strax að loknum kosningum- aðildarviðræður við ESB og að lýsa yfir að í peningamálum verði upptaka evru - með Seðlabanka ESB sem bakhjarl- okkar framtíð.

Við það munu skapast hér skilyrði til raunhæfrar hagstjórnar með nauðsynlegum aga. Í kjölfarið mun trú og traust alþjóðasamfélagsins á Íslandi taka þeim umskiptum að lánshæfi okkar verður að nýju fyrir hendi og á viðráðanlegum kjörum. 

Vextir og verðbólga færu hraðlækkandi og lífskjör heimilanna í landinu líkjast því sem gerist í okkar nágrannalöndum sem best standa. Ljóst er að fyrirtæki sem hafa megin viðskipti sín við útlönd eru nú þegar farin að greiða laun til sinna starfsmann hérlendis í evrum. Hin íslenska króna er ónýt gagnvart umheiminum.

Fram kom á fundinum að meðalheimili er að greiða um 1 milljón í sinn heimilisrekstur umfram það sem nágrannar okkar  greiða á ári til hins sama innan ESB.

Íslendingar, sumir, hafa haldið fram að okkar fisveiðikvóti værið í hættu ef við yrðum innan ESB - það er rangt. Við hefðum öll og óskoruð völd yfir öllum okkar auðlindum. Landbúnaður fengi aukið frelsi til að blómstra ...

Nú er að koma allri umræðu um ESBaðildi upp á raunhæft plan - hefja viðræður og þjóðin metur síðan af- eða á að fengnum réttum forsendum til ákvarðana..

 


mbl.is Húsfyllir á fundi Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SjálfstæðisFLokkur andsnúinn lýðræði til fólksins í landinu

Alþingi: Stjórnarskrárfrumvarpið ekki á dagskrá. Verður hlé gert á störfum þingsins í dag?

althingi-300×2002.jpgÞingfundur hefur verið boðaður á Alþingi kl. 10.30 í dag. Á dagskrá, auk umræðna um störf þingsins í upphafi fundar, eru 18 mál. Athygli vekur að stjórnarskrárfrumvarpið, sem tafið hefur störf þingsins að undanförnu, er ekki á dagskrá. Í gær féllust framsóknarmenn á að einu atriði í frumvarpinu, ákvæði um stjórnlagaþing, yrði frestað, en nú er hugsanlegt að frumvarpið í heild dagi uppi.

Umræður um stjórnarskrárfrumvarpið stóðu til kl. 2 í nótt.

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

SjálfstæðisFLokkur hefur haldið uppi þrotlausu málþófi á alþingi undanfarnar vikur til að hindra að frumvarp um stjórnarskrárbreytingar í átt til aukins lýðræðis fyrir þjóðina næði fram að ganga.

Hugsanlegt er að frumvarpið um stjórnlagaþing dagi uppi á þinginu. Það er þessum ólánsflokki ekki nægjanlegt að hafa hannað og stýrt þjóðinni í efnahagshrun- lýðræðis skal hún ekki njóta umfram það sem FLokkurinn skammtar.

En við getum breytt þessu - það eru kosningar framundan.

Nú eru uppgjörstímar .

Frá því hin" Vanhæfa ríkisstjórn" Geirs H.Haarde var sett frá völdum af fólkinu-með búsáhaldabyltingunni og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir , forsætisráðherra tók við - hafa orðið mikil umskipti við stjórn landsins.

Fólkið í landinu finnur að ríkisstjórnin er til fyrir fólkið í landinu og hagsmuni þess. 

Stétt með stétt er kjörslagorð SjálfstæðisFLokksins - það er heldur mikil stytting á innihaldinu - hið rétta er valdastétt með auðstétt. 

Það er kjarninn í andstöðu SjálfstæðisFLokksins gagnvart auknu lýðræði til fólksins í landinu.  

Munum það í komandi kosningum....


Framsókn þarf leyfi fjármálaaflanna vegna opnunar reikninga.

Framsókn biður um leyfi

Laugardagur 11. apríl 2009 kl 13:24

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Framsóknarflokkurinn ætlar að fá leyfi til að gefa upp nöfn þeirra fyrirtækja sem styrktu flokkinn árið 2006. Framsókn gaf það upp í gær að heildarframlög lögaðila til flokksins hefðu verið 30,3 milljónir króna árið 2006. Vegna trúnaðar væri hinsvegar ekki hægt að gefa upp nöfn fyrirtækjanna.

Sígfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri flokksins, sagði í hádegisfréttum RÚV að flokkurinn leiti nú samþykkis fyrirtækjanna fyrir því að greint frá því hver þau eru. Hann sagði að nokkrir tugir fyrirtækja hefðu styrkt flokkinn árið 2006 og hæsti styrkurinn numið 5 milljónum króna.

_____________________________________________________________________________

Eitthvað þessu líkt hefur margan grunað.

Forysta Framsóknarflokksins er alfarið háð fjármálaöflunum í baklandinu. 

Ekki beint trúverðugur stjórnmálaflokkur.


Fyrirgreiðslur FL Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins

Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2009 | 6:53
Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins. Fimmtíu og fimm milljónir króna verða endurgreiddar úr sjóðum Sjálfstæðisflokksins í þrotabú Stoða, áður FL-Group, og þrotabú Landsbankans. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, forgöngu um að útvega flokknum þessa styrki í árslok 2006.
Lesa meira

Það er ýmislegt að fljóta upp á yfirborðið  úr innviðum Sjálfstæðisflokksins .  30 milljón króna framlag frá "erkifjandanum" þeirra ( að eigin sögn ) sjálfum Baugi vs. FL group og einkavinunum í Landsbankanum uppá 25 milljónir króna (allt á hágengi krónunnar) 

Engin ástæða er til að ætla að svona framlög frá auðfélögum til Sjálfstæðisflokksins séu einangrað fyrirbrigði um tíðina.

Ekki þarf annað en að líta á stórhýsi þeirra, Valhöll  og kosningabaráttu undangenginna áratuga til að  tengja saman við ný fram komnar siðferðisveilur Flokksins. Þessi  fjárframlög upp á 55 milljónir kr., fáeinum mínútum fyrir gildistöku laga um hámark fjárframlaga  fyrirtækja til stjórnmálaflokka upp á hámark 300 þús. kr. , endurspegla siðferði  Sjálfstæðisflokksins.  Þessi gerningur er í árslok 2006.

Fljótlega í ársbyrjun 2007 byrja ýmsar hræringar í orkugeiranum þar sem kröfur Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu á almannaeigum gerast háværar. Kaup einkaaðila á hlutum í Hitaveitu Suðurnesja ná fram að ganga og stofnað er félag innan OR , REI, um einkavæðingu  á verðmætum eignum Orkuveitu Reykjavíkur.

Þau fyrirtæki sem að málum koma eru einmitt þessir mikilvirku styrktaraðilar Sjálfstæðisflokksins- FL group og Landsbankinn í baklandinu. Gjöf er æ til gjalda.

Allir muna næturfundi Vilhjálms fv borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins á síðustu klukkustundunum þegar selja átti mannauð og bita úr OR til þessara aðila. Hannes Smárason , útrásargúrú FL group beið þess að fljúga með samningin til London þar sem hægt yrði að veðsetja hann fyrir milljarðatugi-- en babb kom í bátinn- ungir Sjálfstæðismenn og Svandís Svavarsdóttir gerðu uppreisn og svikagerningurinn var sleginn af. 

Það munaði hársbreidd á að stórfelld sala á fjöreggi þjóðarinnar yrði selt úr landi fyrir fullt og allt. Þetta er ljót saga. 

Þrjú  nöfn forystumanna ber hátt Geir H.Haarde og Guðlaugur Þór Þórðarson ásamt Vilhjálmi fv. borgarstjóra. 

Nú er Sjálfstæðisflokkurinn nakinn fyrir þjóðinni.


mbl.is Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking stærst og hefur mest traust.

Samfylking áfram stærst
Innlent | mbl.is | 2.4.2009 | 18:07
Mynd 494591 Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkurinn um þessar mundir samkvæmt nýrri könnun, sem Capacent hefur gert fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Fylgi flokksins mælist nú 29,4%, fylgi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs mælist 27,7% og fylgi Sjálfstæðisflokksins 25,4%.
Lesa meira

Hún kemur ekki á óvart- þessi niðurstaða í þessari skoðanakönnun.  Samfylkingin undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur nýtur trausts og trúverðugleika . Forysta Jóhönnu í ríkisstjórn nýtur trausts fólksins í landinu.  VG eru einnig að uppskera fyrir verk sín í ríkisstjórninni. 

Þessi niðurstaða vísar veginn inn í kosningarnar.  Hlutfall svarenda er hátt. Könnunin er því marktæk.

Sjálfstæðisflokkur er með fallandi gengi. Landsfundi nýlokið og uppskeran rýr. 

Tröllsleg ræða fv formanns Davíðs Oddsonar fv. Seðlabankastjóra- fór mjög illa í margan flokksmanninn og konuna - einkum á jaðrinum.

Það heyrist á mönnum á götunni.

Ekki bæta nýjar fréttir af óskiljanlegum fjáraustri 400-500 milljarða  úr Seðlabankanum á síðustu dögum fyrir hrun- hrunið sem Davíð sagðist alltaf hafa verið að vara við. Allt þetta fé er þjóðinni glatað. 

Sjálfstæðisflokkur er eðlilega rúinn öllu trausti þjóðarinnar.  Hönnuður og gerandi hrunsins- að mestu.

Einkavæðing bankanna og hrun þeirra tengist flokknum sterkt.  Flokkurinn leggst þver gagnvart öllum lýðræðisumbótum- við sjáum það við uppákomurnar á Alþingi núna....

Framsóknarflokkur er fastur í 10 % fylgi.

Nýjabrumið með formanninn er liðið og kemur ekki aftur. Flokkurinn hefur staðið sig með eindæmum illa í stuðningi sínum ríkisstjórnina.

Fólkið treystir ekki flokknum- spillingin er ekki langt undan.

Baklandið er það sama og var í ríkisstjórnaþátttöku hans- það veit fólkið.

Einkavæðingin bankanna og hörmuleg afleiðing þess er fólki í fersku minni úr í hruninu.

Önnur framboð ná sér ekki á strik og falla atkvæði þeim greidd því dauð niður. 

En að loknum páskum hefst hörð og snörp kosningabarátta- sú styrsta í sögunni.

Spennandi tímar.


mbl.is Samfylking áfram stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking stærsti flokkurinn samkv. skoðanakönnun

VG upp fyrir Sjálfstæðisflokk
Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2009 | 5:33
Mynd 493862 Vinstri grænir, Framsóknarflokkurinn og Borgarahreyfingin bæta við sig fylgi í nýjustu skoðanakönnun Gallup fyrir Morgunblaðið og RÚV miðað við síðustu könnun fyrir viku. Vinstri grænir fara á einni viku úr 24,6% í 26,2% en flokkurinn var með landsfund um síðustu helgi.
Lesa meira

 -------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Samkvæmt þessari skoðanakönnun er Sjálfstæðisflokkur kominn í þriðja sætið með 24,5 % fylgi en Samfylkingin í fyrsta sætið með um 31 % fylgi.

Fylgi Samfylkingarinnar er nokkuð stöðugt í skoðanakönnunum undanfarið - um og yfir 30 %.

Athygli vekur að Borgarahreyfingin er að sækja á - komin með 3,4 % fylgi. Eflaust kemur henni til góða að fjórflokkurinn virðist ætla að heykjast á lýðræðisumbótum sem boðaðar höfðu verið varðandi stjórnlagaþing og persónukjör í komandi kosningum.

Fólkið vill aukið lýðræði - Búsáhaldabyltingin er ekki útdauð. Það verður spennandi að fylgjast með þróun á fylgi Borgarahreyfingarinnar . 

Athygli vekur hin sterka staða Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi - um 35% fylgi.  Samfylkingin var í gærkvöldi að samþykkja framboðslista sinn í SV kjördæmi- mjög sterkur framboðslisti.

Efstu sætin skipa : Árni Páll Árnason, Katrín Júlíusdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir,Magnús Orri Schram og Lúðvík Geirsson í baráttusætinu .

Það verður spennandi að fylgjast með gengi þessa sterka lista Samfylkingarinnar í SV kjördæmi- hvort sex þingmenn og konur verði raunin... 

VG er á öflugri siglingu og bætir við sig- er með 26,2 % fylgi. Þetta er verðskuldað fyrir VG- þeir hafa staðið sig mjög vel í núverandi ríkisstjórn. En ljóst er að komandi kosningar verða spennandi...


mbl.is VG upp fyrir Sjálfstæðisflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stal skinkubréfi og raksápu og dæmdur í fangavist

Beint í meginmál síðu.

Vísir, 24. mar. 2009 15:38

Stal skinkubréfi og raksápu

mynd Skinkubréfið var frá Goða en ekki hráskinka eins og hér sést.

Karlmaður var í dag dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir þjófnað. Brotin áttu sér stað í maí á síðasta ári. Þá fór maðurinn fyrst inn í bílskúr á Selfossi og stal þaðan þráðlausu Butler 2500c símtóli og tveimur myndavélarafhlöðum.

Síðar sama kvöld fór hann í verslun Samkaupa á Selfossi og stal þaðan einu áleggsbréfi af Goða skinku og Gilette rakvél ásamt raksápu samtals að verðmæti 1.484 krónur.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þarna virkar réttarkerfið fljótt og vel- kominn í skilorðbundið tugthús með það sama.   Allt er seinna í svifum ef um milljarðahvörf er að ræða eins og virðist vera í bankahruninu. Undanskot til skattaskjóla á áætluðum milljörðum kr.  -  hjá mörgum aðilum- ekkert skoðað og enginn áhugi virðist vera ... sex mánuðum eftir bankahrun hefur enginn verið tekinn í viðtal- hvað þá meir...

 


Eftirlaunaósóminn á öskuhauga sögunnar

Frétt af mbl.is

Eftirlaunafrumvarp samþykkt
Innlent | mbl.is | 5.3.2009 | 14:00
Alþingi hefur afnumið sérstök lög um eftirlaun ráðherra,... Frumvarp um eftirlaun forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á þingfundi Alþingis nú eftir hádegi. Þar með eru umdeild eftirlaunalög æðstu embættismanna frá árinu 2003 felld úr gildi.
Lesa meira

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þá eru síðustu dreggjarnar af valdatíð Davíðs Oddssonar komnar á öskuhauga sögunnar- sjálfur eftirlaunaósóminn.  

Það þurfti Vinstri græna í ríkisstjórn til að fleygja ósómanum út. 

Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar háði harða baráttu fyrir að ósóma þessum yrði úr lögum komið- en hún fékk ekki þann stuðning sem til þurfti.     Baráttu hennar verður minnst.

En í flokki Vinstri grænna er einn annar baráttumaður sem frá upphafi þessarar hraksmánlegu lagasetningar um eftirlaunakjör æðstu ráðamanna, hefur barist hatrammlega gegn þessu óréttlæti. 

Þessi maður er Ögmundur Jónasson, nú heilbrigðisráðherra.

Hann hefur nú náð því marki að fá þessum ósóma fleygt út úr íslenskum lögum.

Sómi Ögmundar Jónassonar er mikill.


mbl.is Eftirlaunafrumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafna þingmenn Sjálfstæðisflokks persónukjöri til alþingis ?

Frétt af mbl.is

Leggja fram frumvarp um persónukjör
 Þingflokksformenn allra þingflokka á Alþingi annarra en Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram frumvarp um að kosningalögum verði breytt þannig að færi gefist á persónukjöri í kosningum til Alþingis.
Lesa meira

Þingflokksformenn allra flokka á Alþingi ,utan þingsflokks Sjálfstæisflokksins , leggja fram frumvarp um að færi gefist á persónukjöri í kosningunum að vori- til Alþingis.

Ljóst er að persónukjör við röðun á framboðslista er verulegt skref í átt að auknu lýðræði . 

Einn er sá stjórnmálaflokkur sem ekki er lýðræðisþenkjandi hvað varðar aukinn rétt kjósenda við val á þingmönnum.

Sjálfstæðisflokkur sker sig einn úr við frumvarpið um persónukjör. 

Sjálfur meginn ábyrgðarflokkur að efnahagshruninu - vill áframhaldandi flokksræði við val frambjóðenda til Alþingis. Hann hafnar lýðræði við val frambjóðenda. 

Nú reynir á einstaka núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins hvort þeir lúta í einu og öllu flokkseinræðinu eða hafa kjark og burði til að hafa sjálfstæða skoðun. Það verður vandlega fylgst með  hverjum og einum þingmanni við afgreiðslu málsins á Alþingi.

Fyrirsláttur um að tíma skorti til afgreiðslu frumvarpsins eru ómarktæk rök...

Fólkið vill aukið lýðræði. Persónukjör er aukið lýðræði...  

 


mbl.is Leggja fram frumvarp um persónukjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband